Hafnarstjórn

 

Fundur í Hafnarstjórn Þorlákshafnar haldinn á hafnarvoginni Hafnarbakka  8, fimmtudaginn 6. maí 2010 og hófst kl.17:00.

Mættir:

Guðni Birgisson formaður
Birna Borg                                                         
Þráinn Jónsson
Indriði Kristinsson hafnarstjóri
Guðni Pétursson bæjarritari
 

Formaður býður fundarmenn velkomna og setur fund.

 

Dagskrá:

1.  Ársreikningur Hafnarsjóðs Þorlákshafnar 2009.

Guðni Pétursson fer yfir og skýrir reikninginn. Hafnarstjórn samþykkir ársreikning hafnarsjóðs Þorlákshafnar 2009 með undirskrift sinni.

Guðni Pétursson víkur nú af fundi.

 

2.  Framtíð ferjusiglinga í Þorlákshöfn.

Formaður hafnarstjórnar og hafnarstjóri fóru á fund með starfsmönnum Vegagerðarinnar 13. apríl s.l. Þar var rætt um framtíð ferjusiglinga milli Þorlákshafnar og Vestmanneyja.

Bréf barst frá Vegagerðinni í framhaldi af fundinum varðandi ferjuaðstöðu í Þorlákshöfn dagsett 21. apríl 2010.

Bréfið lagt fram til kynningar:


Bréfið

 

3.  Átaksverkefni í samráði við Vinnumálastofnun.

Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra í samráði við launafulltrúa sveitarfélagsins að kanna málið frekar og taka þátt í verkefninu ef mögulegt er.

4.  Samgönguáætlun 2011-2014

Hafnarstjórn samþykkir að senda eftirfarandi umsókn til Siglingastofnunar vegna samgönguáætlunar 2011-2014

Siglingastofnun Íslands

SAMGÖNGUÁÆTLUN 2011 - 2014

Höfn/svf.:Þorlákshöfn

 Vesturvör 2

UMSÓKN UM FRAMLAG Útfyllt af:Indriða Kristinssyni
200 Kópavogur   Dags: 10. maí 2010
     

 

Ár Verkefni

Stutt lýsing á verkefnum (helstu stærðir)

og markmiðum framkvæmda

 

2011

 

 

 Flotbryggja

 

 

Flotbryggju í smábátahöfn um 40 metrar á lengd. Vantar aðstöðu fyrir stærri gerðir af smábátum.

 

 2012

 

 

 

 

Viðhaldsdýpkun.í innsiglingu.

 

Stórskipahöfn.

 

Dælt úr innsiglingu um 30-40 þúsund rúmmetrum. Efnisflutningar um 10 þúsund rúmmetrar á ári. Greitt úr óskiptu.

 

 Undirbúningur að hönnun og byggingu stórskipahafnar.

 

 2013

 

 

 

Bryggja í smábátahöfn.

 

Þil í Austurhöfn.

 

Bryggja í smábátahöfn 100 metrar. Dýpi 4 metrar.

 

Þil á Austurgarð 150 metrar dýpi 9 metrar. Þekja og lagnir.

 

2014

 

 

Stórskipa höfn.

Viðhaldsdýpkun.

 

Stórskipa höfn framkvæmdir.

Dælt úr höfn og innsiglingu. 

  
 

Fleira ekki tekið fyrir fundargerð lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:00

Ritari Indriði Kristinsson.          


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica