Fundur í Hafnarstjórn Þorlákshafnar haldinn á hafnarvoginni Hafnarbakka 8, fimmtudaginn 5. ágúst 2010 og hófst kl.18:00.
Mættir:
Þráinn Jónsson formaður
Stefán Jónsson
Guðmundur Baldursson
Indriði Kristinsson hafnarstjóri.
Formaður býður fundarmenn velkomna og sérstaklega nýja menn í hafnarstjórn og setur fund.
Dagskrá:
1. Dýpkanir innan og utan hafnar.
Starfsmenn Siglingastofnunar mældu dýpið um mánaðarmótin mai/júni niðurstöður liggja fyrir. Dæla þarf um 20.000 þúsund rúmmetrum innan og utan hafnar. Fjárveiting til verksins er tryggð í fjárlögum hlutur hafnarsjóðs er 25% af kostnaði, Siglingastofnun er að semja við Björgun hf um verkið.
2. Endurskoðun vaktfyrirkomulags.
Nýir hafnarstjórnarmenn settir inn í málin, ákveðið að funda um endurskoðun vaktfyrirkomulags með bæjarstjóra sem fyrst.
3. Erindi frá Fóðurblöndunni hf. varðandi geymslusvæði í Þorlákshöfn.
Erindi varðandi afgirt geymslusvæði á planinu við Skarfaskersbryggjuna, barst frá Fóðurblöndunni hf. 23. júlí s.l.
Formanni hafnarstjórnar og hafnarstjóra falið að funda með starfsmönnum Fóðurblöndunar hf. um erindið.
4. Málefni Herjólfs.
Málefni Herjólfs kynnt fyrir nýjum mönnum í hafnarstjórn, ákveðið að fá bæjarstjórann að málinu. Unnið verði í því að fá fund með starfsmönnum Vegagerðarinnar sem fyrst og reynt að finna farsæla lausn sem gæti hentað báðum aðilum.
5. Gjaldskrá Þorlákshafnar.
Hafnarstjórn samþykkir breytingar á gjaldskrá Þorlákshafnar þar sem gjaldskrá fyrir ferjusiglingar eru felldar út frá 1. september 2010
6. Önnur mál.
Borist hefur erindi frá forseta bæjarstjórnar um hugsanlega fjölgun fulltrúa í hafnarstjórn til fyrra horfs.
Málið rætt, hafnarstjórn telur ekki þörf á fjölgun fulltrúa en málið lagt fyrir bæjarstjórn til endanlegrar ákvörðunar
Fleira ekki tekið fyrir
fundargerð lesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19:30.
Ritari Indriði Kristinsson

