Hafnarstjórn

 

                         HAFNARSTJÓRN ÞORLÁKSHAFNAR

 

Fundur í Hafnarstjórn Þorlákshafnar haldinn á hafnarvoginni Hafnarbakka  8, þriðjudaginn 27. september 2011 og hófst kl . 13:00

 

Mættir:

 

Þráinn Jónsson formaður.

Guðmundur Baldursson

Stefán Jónsson

Indriði Kristinsson hafnarstjóri.

 

Formaður býður fundarmenn velkomna og setur fund.

 

Dagskrá:

 

1.  Fjárhags-og framkvæmdaáætlun Hafnarsjóðs 2012

 

Unnið í fyrstu drögum af fjárhags-og framkvæmdaáætlun 2012. Hafnarstjóra falið að leita tilboða í nýjan bíl og myndavélakerfi fyrir höfnina.

 

2.  Starfsmannamál.

 

Erlendur Jónsson hafnarvörður hefur sent inn uppsagnarbréf með uppsögn 1. október og starfslokum 31. desember n.k.

Erindið tekið fyrir.

 

3.  Sjávarútvegssýningin.

 

Sjávarútvegssýningin 2011 var haldin í Smáranum í Kópavogi dagana 22-24 september s.l.  Hafnarsjóður ásamt Ísfélagi Þorlákshafnar, Járnkarlinum og fl. fyrirtækjum í Þorlákshöfn leigðu 12 m2 sýningarbás og kynntu starfssemi sína.

Básinn vakti verðskuldaða athygli fjölmargra sýningargesta og ber að þakka Þórarni Gylfasyni grafískum hönnuði fyrir vel unnin störf.

 

4.  Flotbryggjan.

 

Flotbryggjurnar sem samið var um við Króla ehf. eru í framleiðslu hjá Loftorku í Borgarnesi og verða tilbúnar á næstu dögum.

 

 

 

Fleira ekki tekið fyrir fundargerð lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14:30

Ritari Indriði Kristinsson.          

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica