Íþrótta - og æskulýðsnefnd.
7. fundur íþrótta – og æskulýðsnefndar var haldinn í fundarsal Íþróttamiðstöðvar mánudaginn 19. desember 2011 og hófs hann kl 17:00.
Fundinn sátu:
Ágúst Örn Grétarsson, Hákon Hjartarson, Valur Rafn Halldórsson, Anna Sólveig Ingvadóttir og Skúli Kristinn Skúlason.
Fundargerð ritaði: Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta – og æskulýðsfulltrúi.
Dagskrá
- 1112032 – Íþróttamaður ársins 2011.
Eitt mál var á dagskrá íþrótta – og æskulýðsnefndar.
Teknar voru fyrir tilnefningar til Íþróttamanns ársins 2011.
Tíu íþróttamann eru tilnefndir að þessu sinn og verða viðurkenningar afhentar föstudaginn 30. desember kl. 17:00 í Ráðhúskaffi.
Einnir verða veittar viðurkenningar fyrir ýmiss önnur afrek á íþróttasviðinu í sveitarfélaginu á árinu 2011.

