Menningarnefnd
                                              80. fundur menningarnefndar

haldinn  á Bæjarbókasafni Ölfuss, miðvikudaginn 1. febrúar 2012 og hófst hann kl. 20:00.   

 

 

Fundinn sátu:

Jenný Dagbjört Erlingsdóttir, Róbert Dan Bergmundsson, Valgerður Guðmundsdóttir og Barbara Helga Guðnadóttir.

 

Fundargerð ritaði:  Barbara H. Guðnadóttir, menningarfulltrúi.

 

 

 

Dagskrá:

 

1.

1109003 - Menningarstefna Ölfuss

Í næstu viku fara út kannanir til íbúa og á vefinn, en niðurstöður þeirra verða nýttar í þeirri vinnu sem í kjölfarið fer í hönd við endurskoðun menningarstefnunnar.

 

2.

1201049 - Ósk um breyttan fundartíma

Menningarfulltrúi óskaði eftir að fundartími yrði færður yfir á hefðbundinn vinnutíma. Eftir umræðu kom í ljós að það mundi ekki ganga upp og var því ákveðið að skoða breytingu á fundartíma, en þó seinni hluta dags.

 

3.

1201050 - Verkefni árið 2012

Farið var yfir drög að menningardagskrá fyrir árið 2012. Enn er hægt að bæta við sýningum í Gallerí undir stiganum, en sýningarhald þar er endurgjaldslaust.

 

4.

1201051 - Samþykkt fyrir Byggða- og Bæjarbókasafn Ölfuss

Menningarfulltrúi greindi frá því að starfsfólk bókasafns væri að vinna að samþykkt fyrir Byggða- og Bæjarbókasafn Ölfuss auk aðfangastefnu fyrir bókasafnið. Þegar drög verða tilbúin verða þau lögð fyrir fund nefndarinnar til kynningar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:58

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica