Menningarnefnd

66. fundur menningarnefndar haldinn miðvikudaginn 5. maí kl. 20:00 í Ráðhúskaffi

 

Mættir: María Sigurðardóttir, Jenný Dagbjört Ævarr Erlingsdóttir, Dagný Erlendsdóttir í forföllum Jóns Inga Jónssonar, Róbert Dan Bergmundsson, Barbara Guðnadóttir menningarfulltrúi og Sigþrúður Harðardóttir sem ritaði fundargerð.

 

 

Fundargerð:

 

1. Hafnardagar.

Barbara fór yfir dagskrá Hafnardaga. Nokkrir liðir eru orðnir fastir og ákveðnir, aðrir í undirbúningi. Dagskráin verður frá miðvikudagskvöldi til sunnudagskvölds, 2.-6.júní. Framkvæmdastjóri og menningarfulltrúi hafa verið í samstarfi við félagasamtök í sveitarfélaginu og marga fleiri aðila um samstarf vegna hátíðarinnar. Útvarp Hafnardagar verður starfrækt eins og í fyrra, vikuna 31.maí-6.júní.

 

2. Farið yfir stöðu verkefna sem unnið hefur verið að.

Barbara hefur tekið saman og kynnti á fundinum þau verkefni sem unnið hefur verið að á árinu á vegum menningarnefndar/menningarfulltrúa. Verkefnin tengjast Byggðasafninu, Bæjarbókasafninu, hverfisverndarsvæðinu/Verstöðinni Þorlákshöfn, ferðaþjónustu og margvíslegum listviðburðum. 

Barbara lýsti yfir miklum áhyggjum vegna þeirra muna sem tilheyra Byggðasafni Ölfuss og ekkert viðunandi geymsluhúsnæði er til staðar fyrir. Hún telur að eins og staðan er núna liggi margir þessara muna undir skemmdum. Menningarnefnd ályktar á þá leið að fyrsta og mikilvægasta verkefni nýrrar menningarnefndar og bæjarstjórnar sé að leysa hið fyrsta þennan vanda varðandi geymslu og sýningarhúsnæði Byggðasafnsins.

 

3. Viðburðir framundan

Barbara fór yfir Menningardagskrá 2010, bæði það sem liðið er og einnig það sem framundan er.  Sýningar, tónleikar, listasmiðja, sumarlestur á bókasafni, prjónakvöld, norræn bókasafnsvika, fjölmenningarhátíð og margt fleira. Umræður voru um viðburðina og tveir af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Jenný Dagbjört og Róbert Dan lýstu yfir óánægju sinni með tímasetningu næstu sýningar undir stiganum vegna komandi bæjarstjórnarkosninga, en það er ljósmyndasýning fyrrverandi bæjarstjóra.

 

4. Önnur mál.

María formaður lauk fundinum með því að þakka nefndinni sérstaklega ánægjuleg samskipti og samstarf á kjörtímabilinu þar sem allt hefur gengið afar vel með frábæru samstarfi við menningarfulltrúa.

 

Fleria ekki rætt og fundi slitið.

Sigþrúður Harðardóttir fundarritari


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica