67. fundur menningarnefndar haldinn miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20:00 á Bæjarbókasafni Ölfuss
Mættir: Magnþóra Kristjánsdóttir, Jenný Dagbjört Erlingsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Brynjólfur Hjörleifsson, Róbert Dan Bergmundsson og Barbara Guðnadóttir menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Fundargerð:
Formaður menningarnefndar bauð fundarmenn velkomna til starfa í nýrri menningarnefnd og tilkynnti að menningarfulltrúi tæki að sér fundarritun á fyrsta fundi. Óskað var eftir því að einhver annar mundi taka að sér fundarritun framvegis og féllst Jenný Dagbjört á að taka það að sér.
1. Fjárhagsáætlun menningarsviðs og staða
Menningarfulltrúi fór yfir fjárhagsáætlun menningarsviðs fyrir árið 2010 til kynningar fyrir nefndina. Spurt var um hvernig staðan væri á ritun sögu Þorlákshafnar. Menningarfulltrúi greindi frá því að handritshöfundur hefði ekki komist í verkefnið í nokkurn tíma vegna annars vegar anna í starfi vegna starfsloka hjá Héraðsskjalasafni Árnesinga og hinsvegar vegna persónulegra ástæðna. Nú er þó útlit fyrir að haldið verði áfram skrifum og stefnir handritshöfundur að því að ljúka lokakaflanum svo hægt verði að búa ritið til útgáfu.
2. Verkefni menningarnefndar
Menningarfulltrúi greindi frá helstu verkefnum nefndarinnar og stöðu þeirra. Þegar rætt var um byggðasafnsmál urðu miklar umræður um framtíð muna safnsins og þá aðallega húsnæðisskort, sérstaklega hvað geymslu á mununum viðkemur. Allir voru sammála því að nauðsynlegt væri að finna lausn á húsnæðisvandanum.
Menningarfulltrúi sagði frá uppbyggingu á minjasvæðinu og hönnun þess. Lagt var til að skoðað yrði hvort ekki væri hægt að fá Fornverkaskólann til liðs við menningarnefnd til að hlaða og byggja sjóbúð á svæðinu.
Þá var greint frá því að búið væri að leggja heilmikla vinnu í útsýnissvæðið á varnargarðinum. Þar er búið að koma fyrir mörgum dólosum til að prýða svæðið.
Spurt var um dólosinn sem notaður hefur verið sem kennileiti fyrir bæinn og prýddi gömlu innkeyrsluna í bæinn. Menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn og umhverfis- og skipulagsnefnd, að dólosinn sem var við gömlu innkeyrsluna verði færður og fái að njóta sín við nýja innkeyrslu inn í bæinn.
Miklar umræður urðu um Hafnardagahátíðina, en á næsta ári er 60 ára afmæli Þorlákshafnar. Menningarnefnd leggur til að bæjarráð eða bæjarstjórn skipi afmælisnefnd hið fyrsta til að hefja undirbúning hátíðarinnar.
3. Ferðamálastefna Ölfuss og Markaðsstofa Suðurlands
Menningarfulltrúi afhenti nefndarmönnum ferðamálastefnu Ölfuss og greindi frá því að næsta sýning undir stiganum yrði einmitt kynning á ferðamálastefnunni. Ennfremur kynnti menningarfulltrúi fyrir nefndinni Markaðsstofu Suðurlands. Sveitarfélagið er ekki í samstarfi við markaðsstofuna og telur menningarfulltrúi æskilegt að það verði endurskoðað. Óskað var eftir gögnum frá Markaðsstofunni um hlutverk hennar og samstarf við sveitarfélögin, en þau höfðu ekki borist fyrir fundinn og verða því lögð fram síðar.
4. Önnur mál
Fundartími menningarnefndar. Ákveðið var að halda fundi fyrsta miðvikdag í mánuði kl. 20:00. Næsti fundur verður því 1. september.
Fleira ekki rætt og fundi slitið 21:55

