68. fundur menningarnefndar haldinn miðvikudaginn 1. september kl. 20:00 á Bæjarbókasafni Ölfuss
Mættir: Magnþóra Kristjánsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Jenný Dagbjört Erlingsdóttir sem ritaði fundargerð og Barbara Guðnadóttir menningarfulltrúi.
Brynjólfur Hjörleifsson og Róbert Dan Bergmundsson boðuðu forföll.
Magnþóra bauð fundarmenn velkomna og gekk síðan til dagskrár.
1. Afgreiðsla bréfa sem hafa borist: Bréf frá RS-útgáfu sf þar sem óskað er um styrk til áframhaldandi útgáfu Bæjarlífs.
Ákveðið var að vísa erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Menningarnefnd telur ástæðu til að erindið fái jákvæða umfjöllun þar sem útgáfa Bæjarlífs á 10 ára afmæli á næsta ári.
2. Undirbúningur afmælisárs Þorlákshafnar 2011.
Menningarnefnd mun taka að sér skipulag afmælishátíðar Þorlákshafnar í samstarfi við framkvæmdastjóra Hafnardaga. Auglýst verður eftir framkvæmdarstjóra á næstunni.
Ræddar ýmsar hugmyndir að dagskrá hátíðarinnar einnig nefnt að fegra og bæta þurfi Skrúðgarðinn fyrir hátíðarhöldin. Menningarfulltrúa falið að senda erindi til skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar varðandi þetta atriði.
3. Skipulag vinnu við endurskoðun menningarstefnu Ölfuss.
Umræður um hvernig best væri vinna að endurskoðun stefnunnar. Ákveðið að gera skoðanakönnun meðal íbúa sambærilega við skoðanakönnun er gerð var árið 2007.
4. Önnur mál
Málefni húsnæðismála byggðasafnsins.
Í kjölfar staðfestingar fundargerðar menningarnefndar á síðasta bæjarstjórnarfundi og umræðum sem henni fylgdu var menningarfulltrúa falið að skoða þá möguleika sem í boði eru og kynna þá fyrir bæjarstjórn.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 20:55

