Menningarnefnd

78. fundur menningarnefndar

 

haldinn  á Bæjarbókasafni Ölfuss, miðvikudaginn 19. október 2011 og hófst hann kl. 20:00.

Fundinn sátu: 

Jenný Dagbjört Erlingsdóttir, Róbert Dan Bergmundsson, Brynjólfur Hjörleifsson, Magnþóra Kristjánsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og Barbara Helga Guðnadóttir.

 

Fundargerð ritaði:  Barbara H. Guðnadóttir, menningarfulltrúi.

Dagskrá:

                                                                                                  
   1.       1109003   - Menningarstefna Ölfuss  
          Menningarfulltrúi   lagði fram drög að skoðanakönnun sem byggir á könnun sem gerð var þegar fyrsta   stefnan var unnin. Farið var yfir drögin og bætt við nokkrum spurningum.   
                    
   2.       1110015   - Lagfæringar við vef sveitarfélagsins  
          Jenný   Dagbjört Erlingsdóttir benti á hversu óaðgengileg Ölfus vefsíðan er að mörgu   leyti. Vefsíðan var skoðuð og farið yfir þætti sem betur mættu   fara. Gaman væri að sjá fleiri myndir og nauðsynlegt að   einfalda fólki að finna það sem leitað er eftir. Lagt var til að   bætt verði við spurningum í könnun til íbúa varðandi vefsíðuna og óskað eftir   því að mæld verði notkun á síðunni. Með niðurstöður og tillögur til   úrbóta verður síðan reynt að lagfæra vefinn eins og hægt er án mikils   tilkostnaðar.   
                    
   3.       1109001   - Lista- og menningarsjóður 2011  
          Fimm   umsóknir bárust í Lista- og menningarsjóð Ölfuss að upphæð 1.285.000 krónur.   Til úthlutunar voru 285.000 krónur. Ákveðið var að styrkja þrjú verkefni að   upphæð 95.000 krónur hvert. Um er að ræða nýárstónleika Lúðrasveitar   Þorlákshafnar, MA verkefni Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur sem ber   yfirskriftina "Hefur markviss tónlistariðkun áhrif á líðan eldri   borgara?" og uppsetningu Leikfélagsins á gamanleiknum Himnaríki.   
                    
Magnþóra Kristjánsdóttir og Róbert Dan Bergmundsson viku af fundi undir síðasta liðnum á dagskrá.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica