| 1. |
1011057 - Deiliskipulag starfsmannahús |
|
|
Deiliskipulagið nær til Grænhóls i, Grænhóls II og Strýtu. Uppdráttur lagfærður eftir auglýsingu vegna ábendinga frá Skipulagsstofnun. Uppdrátturinn þannig áritaður til afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun.
Afgreiðsla: Samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
1111054 - Deiliskipulag ylræktarvers við Hellisheiðarvirkjun. |
|
|
Fyrir liggur samþykkt frá SBU og bæjarstjórn að skipulagslýsing fyrir ylræktarver, innan iðnaðarreits vestan Kolviðarhóls, á um 112 ha svæði, verði kynnt á íbúafundi. Einnig eru gögn kynnt þeim sem málið varða, nágrannasveitarfélögum, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Fornleifavernd ríkisins, Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og Vegagerðinni.
Íbúafundur haldinn 12. janúar 2012 í Ráðhúsi Ölfuss. Þar var skipulagslýsing og drög að deiliskipulagi kynnt. Drög að deiliskipulagi verða auglýst samhliða endurskoðuðu aðalskipulagi Ölfuss, 2010-2022.
Afgreiðsla: Samþykkt að endurskoðað aðalskipulag Ölfuss 2010-2022 og drög að deiliskipulagi með greinargerð og umhverfisskýrslu verði auglýst samhliða.
|
| |
|
|
| 3. |
1201018 - Framlenging á stöðuleyfi fyrir gáma vegna CarbFix verkefnis í Svínahrauni og þrenglsum |
|
|
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir framlengingu á stöðuleyfum fyrir gáma vegna CarbFix rannsóknarverkefnis í Svínahrauni og Þrengslum. Erindin um framlengingu hafa verið afgreidd árlega í SBU.
1.Um er að ræða 20 feta gám við borholu HN-2/HN4 sunnan við gamla Suðurlandsveginn.
2. 10 feta gám við núverandi vöktunarholur HK-12/HK-31 austan við Þrengslaveg.
3. 10 feta gámur við núvernandi vöktunarholur HK-25/HK-26 á sléttlendinu neðan námunnar í sunnanverðu Lambafelli.
4. 20 feta gámur við vöktunarholu HN-1, á plani við gömlu Þrengslavegamótin.
Verkefnið er í vinnslu, en nú stöðugt dælt niður 0.2l/s af vatni í holu HN-2 og 1 l/s upp úr vöktunarholu HN-4.
Afgreiðsla: Framlenging á stöðuleyfi fyrir gámana er veitt í 12 mánuði.
|
| |
|
|
| 4. |
1101031 - Kynning á deiliskipulagi fyrir vatnstöku við Ingólfsfjall til eigenda að Árbæjarlandi |
|
|
Á grunni þess að bæjarstjórn hefur samþykkt deiliskipulagi er sýnir dæluhús innan lands Árborgar, fyrir vatnstöku við Ingólfsfjall, er sótt um framkvæmdaleyfi til að leggja rafstreng frá línum Rariks að dæluhúsinu. Deiliskipulagið er hjá Skipulagsstofnun til samþykktar.
Þegar deiliskipulagið er samþykkt hjá Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda, er heimilt að veita umbeðið framkvæmdaleyfi, enda er verið að leggja rafstreng frá línu RARIKs í landi Árborgar að dæluhúsi innan lands Árborgar.
Afgreiðsla: Þegar deiliskipulagið er samþykkt af Skipulagsstofnun, verður framkvæmdaleyfið gefið út.
|
| |
|
|
| 5. |
1201017 - Skipulagslýsing og deiliskipulag Hlíðartungu landnr. 190896 |
|
|
Lögð er fram til kynningar skipulagslýsing og drög að deiliskipulagi á landi úr Hlíðartungu, landnr. 190896, um 3,7 ha. Fyrirhugað er að skipta landinu í þrjár lóðir, tvær 5000 m2 íbúðalóðir og eina 2,7 ha landspildu/smábýli. Á íbúðalóðunum tveimur er fyrirhugað að byggja íbúðarhús, bílgeymslu og vinnustofu. Á lóðinni nær Hvammsvegi yrði byggt allt að 190 m2 íbúðarhús með bílgeymslu og 60 m2 vinnustofa. Á íbúðarlóðinni austan við hana yrði byggt 170 m2 íbúðahús með bílgeymslu og 80 m2 vinnustofu. Á austustu lóðinni, sem flokkast mun sem landspilda eða smábýli skv. endurskoðuðu aðalskipulagi 2010-2022 og sem deiliskipulagið byggir á, stendur til að byggja allt að 250 m2 íbúðahús og bílgeymslu, gestahús allt að 60 m2 og allt að 1000 m2 skemmu. Byggingarmagn hverrar lóðar samræmist nýtingarhlutfalli 0.05. Reiknað er með vegtengingu við Hvammsveg við vegtengingu að Hrafnagili. Aðkomuvegur að lóðunum er í landi landspildu/smábýlis sem er 2.7 ha. Kvöð er um aðkomu að 5000 m2 lóðunum um þennan veg. Fram þarf að koma hver sér um gerð vegarins, rekstur og viðhald á honum. Byggingarreitur sem næst liggur Hvammsvegi er í 75 m fjarlægð. Bent á að Borgargerði liggur í svipaðri fjarlægð frá Hvammsvegi.
Landið er 57.55 m á breidd. Ekki er sótt um að byggja hesthús á lóðunum. Ákvæði er um að minnsta fjarlægð frá byggingarreit hesthúss að lóðarmörkum sé 25 m og minnsta fjarlægð frá byggingarreit hesthúss að byggingarreit fyrir íbúðarhús á næstu lóð, 40 m.
Afgreiðsla: Erindið lagt fram.
|
| |
|
|
| 6. |
1101035 - Losunarstaður jarðefna við Bolaöldur |
|
|
Samkvæmt matslýsingu fyrir efnistöku í Bolaöldum, í Vífilfelli, skal ganga frá eldri námu með óvirku efni. Kynntur er samningur sem Bolaöldur ehf hafa gert við nokkur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu til að taka á móti óvirkum efnum frá þeim til frágangs á eldri svæðum á námusvæðinu sem efnistaka er hætt á.
Samningurinn er í samræmi við bókun SBU að efnistaka skal vera á hendi námuhafa og starfsleyfi gefið út á Bolaöldu ehf um móttöku á óvirku efni og frágangi á eldri svæðun innan námunnar.
Afgreiðsla: Samningurinn er í samræmi við bókun SBU um frágang á námunni. Samþykkt.
|
| |
|
|
| 7. |
1109012 - Umsögn vegna deiliskipulags Reykjakots II |
|
|
Erindi er hjá Umhverfisráðherra og Skipulagsstofnun, hefur verið þar síðan í nóvember 2011. Tilkynnt var að á fundi SBU 17. janúar n.k. verði tekið fyrir graftrarleyfi til að byrja á nýju íbúðarhúsi. SBU og bæjarstjórn hafa samþykkt að heimila byggingarreiti nær Hengladalsá, en 50 m.
Skipulagsstofnun óskar eftir að skoðað verði með að hafa byggingarreit um 43 m frá Hengladalsá, í stað tæpra 30 m, áður en hún veitir umsögn um undanþágu frá 50 m reglunni til Umhverfisráðuneytisins. Hönnuður og eigandi lands eru að skoða það mál.
SBU og bæjarstjórn hafa með rökum fyrir þessu erindi samþykkt erindið með minna en 50 m að Hengladalsá.
Afgreiðsla: Erindið hefur verið samþykkt eins og deiliskipulagstillagan var lögð fram.
|
| |
|
|
| 8. |
1112012 - Matsáætlun Efnistaka í Hvammsnámum |
|
|
Skipulagsstofnun hefur gefið umsögn um matsáætlun sem lögð var fram um efnistöku í landi Hvamms. Hönnuður og eigandi lands þurfa að bregðast við þeim ábendingum.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Leiðrétt matsáætlun verður lögð að nýju fram í SBU til umsagnar. Fyrir skal liggja starfsleyfi til landmótunar í námunni, sem taka skal fyrir í SBU.
|
| |
|
|
| 9. |
1201014 - afnotasamningur lóð nr. 12 |
|
|
Landgræðsla ríkisins hefur markað skika í landi sínu, sem nefnist landnemaland, og þar verði unnið að landgræðslu og skógrækt. Í afnotasamningi er gerð grein fyrir að vinna skal uppgræðslu- og skógræktaráætlun, innan árs frá dagsetningu á samningi, sem hljóti samþykki landeiganda. Um er að ræða 5 ha lands með leigutíma í 10 ár. Fyrir er samningur um uppgræðslu á reit nr. 10. Þessi afnotasamningur nær til reits nr. 12. Aðkoma að reitunum er frá þjóðvegi og þarf að fara yfir land Hlíðarenda til að komast inn á land Landgræðslu ríkisins. Sótt hefur verið um leyfi til landeiganda Hlíðarenda, um að fara yfir hans land að reit nr. 12 eins og kemur fram í 1. gr. afnotasamningsins. Munnlegt leyfi komið en gerður verður samningur við landeiganda um málið.
Málið kynnt. Sigurður Jónsson vék af fundi undir þessu máli.
|
| |
|
|
| 10. |
1201026 - Skipulagslýsing, matslýsing, tilkynning |
|
|
Skipulagslýsing, matslýsing og tilkynning um matskylda framkvæmd. Ökukennarafélag Íslands var kominn með samning við Sveitarfélagið Ölfuss 18. maí 2010 sem ekki náðist að undirrita fyrir kosningar. Í júní féll úrskurður um að landið við Vífilfell væri þjóðlenda. Ökukennarafélag Ísland heffur verið síðan að reyna að fá samning um land fyrir aksturskennslu brautir, við hliðina á svæði Vélíþróttadeildar VÍK. Í endurskoðuðu aðalskipulagi Ölfuss, 2010-2022 er gert ráð fyrir landnotkun fyrir aksturkennslubrautir við hliðina á svæði VÍK. Í samræmi við endurskoðað aðalskipulag 2010-2022, sem verið er að setja í auglýsingu, er tekin fyrir skipulagslýsing, matslýsing og tilkynning til Skipulagsstofnunar sem er undanfari að því að heimila gerð deiliskipulags á svæðinu.
Afgreiðsla: Samþykkt að skipulagslýsing, matslýsing og tilkynning um matsskylda framkvæmd, verði send Skipulagsstofnun til umsagnar.
|
| |
|
|