|
Fundargerð 11. maí 2010 skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar, þriðjudaginn 11. maí 2010 kl. 08:15 |
Birna Borg Sigurgeirsdóttir, formaður
Kjartan Björnsson,
Gunnari Ingi Sveinsson,
Hróðmar Bjarnason.
Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Ráðgjafar sveitarfélagsins í skipulagsmálum Gísli Gíslason, Steinsholt sf og Óskar Örn Gunnarsson, Landmótun sf.
1. Ráðgjafar frá Landmótun fara með okkur yfir endurskoðun aðalskipulagsins. Tillaga að bréfi til umhverfisráðherra sem svar við athugasemdum frá Skipulagsstofnun við samþykkt á breytingum á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014.
Staðan:
Samfélag og byggð
Opin svæði til sérstakra nota
A. Atvinna
Iðnaðarsvæði
B. Grunnkerfi
Reiðleiðir
C. Náttúra og verndarsvæði
Hengill
D. Næstu skref
2. Efni: Lúxus Ævintýrareisur kt. 5601032390 – fjórhjólaferðir á Hengilvæði – möguleikar og samvinna
Inn á fundinn mættu frá Orkuveitu Reykjavíkur f.h. landeiganda að landsvæði við Húsmúla og á Helgilssvæðinu, Eggert Lárusson, Hannes Frímann Sigurðsson, Belinda Eir Engilbertsdóttir.
Og fyrir Lúxus Ævintýrareisur, Ólafur Þorgrímsson og Karl Ólafsson
Lúxus Ævintýrareisur hafa starfrækt fjórhjólaferðir frá Bolöldusvæði í 3 ár eða síðan jan. 2007.
Mikilvægt er fyrir fyrirtækið að vinna þetta skipulega með sveitarfélaginu, hvar má vera í framtíðinni og jafnvel breytt leiðum eftir vinnuframkvæmdum Orkuveitunnar til að vera sveigjanlegur og ekki fyrir á svæðinu að hverju og einu sinni.
Fyrirtækið vill vinna þetta með sveitarfélaginu til langs tíma og virða þær leiðir sem það notar með samþykki þess.
Óskað er eftir að finna framtíðarlausn fyrir aðstöðu og hvar megi keyra til að ekki fari til spillis 3 ára erfiði að læra á rekstur fjórhjólaferða því grundvallarskilyrði er að geta haft aðgengi fyrir reksturinn á Hengilsvæðinu og nágrenni.
3. Erindi frá 365 miðlum um blaðakassa fyrir Fréttablaðið.
Kynning á þeim breytingum sem eru hjá 365 í sambandi við Fréttablaðið.
Frá og með næstu mánaðarmótum verður frídreifingu Fréttablaðsins hætt í verslum og bensínstöðvum um land allt. Blaðið verður boðið til sölu þess í stað hjá þeim á sama hátt og önnur dagblöð.
Í staðinn er verið að bjóða sveitarfélaginu að setja upp kassa, þar sem íbúar geta nálgast blaðið þeim að kostnaðarlausu.
Það þýðir að það verður engin fækkun á blöðum í Þorlákshöfn en vonandi verður þetta til þess að blöðin dreifast meira á meðal íbúa bæjarins.
Það sem við þurfum að fá staðfest frá ykkur er leyfi til þess að setja upp kassa.
4. Í bæjarráði 11. mars s.l. ver tekið fyrir erindi Skógræktar- og uppgræðslufélag Ölfuss þar sem sótt er um land fyrir skógrækt á svæði á Hafnarsandi.
Bæjarráð mælir með því að skógræktar- og uppgræðslufélag Ölfuss fái 80 ha svæði norðvestan við Þorlákshöfn til afnota. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari úrvinnslu.
Erindið var tekið fyrir í skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd þann 18. mars s.l.
Umsögn: Tillaga að afmörkun svæðisins nær til vesturs inn á vatnsverndarsvæðið og að vatnsbóli fyrir Þorlákshöfn. Óskað er eftir 80 ha svæði í einni heild samkvæmt uppdrætti sem fylgir með. Í greinargerð með endurskoðuðu aðalskipulagi er gert ráð fyrir skógræktarsvæðum með ákveðnum hugmyndum. Innan svæða geti verið útvist, reiðleiðir og annað. Úthlutun til félagasamtaka að taka að sér skógrækt á svæðinu er bundin því að stefnumörkun haldi sér og að svæðin verði opin fyrir uppbyggingu útivistar og leiða um svæðið.
Afgreiðsla: Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir m.a. skógrækt á opnu óbyggðu svæði norðan við byggðina. Innan þess svæðis getur verið skógrækt, reiðleiðir, rjóður fyrir bekki og borð, leiksvæði og ýmiskonar útivist. Við stækkun bæjarins getur komið til að bærinn stækki til norður og þá inn á svæðið. Umbeðið svæði nær inn á vatnsból bæjarins.
Tekið er vel í hugmyndina að finna svæði til skógræktar. Rætt verði við fulltrúa frá Skógræktar- og uppgræðslufélagi Ölfuss um framvindu málsins.
5. Stofnfiskur hf. á og rekur fiskeldisstöð á Fiskalóni í Ölfusi.
Komið hefur í ljós að fyrirtækið þarf með hraði að laga vatnskerfi stöðvarinnar. Framkvæmdin felst í því að byggja lítið vatnshreinsihús sem verður ca. 24 fermetrar að stærð.
Meðfylgjandi er leyfi frá Orkuveitu Reykjavíkur sem á landið, til að byggja húsið.
6. Hafnarskeið 28-30, verksmiðja Lýsis hf. Þorlákshöfn.
Meðfylgjandi eru teikningar VGS af Hafnarskeiði 28-30, dags. 3. maí 2010, nr. 100, 101 og 102. Um er að ræða teikningar vegna eftirfarandi:
a) Byggt við suðurenda Hafnarskeiðs 28-30 fyrir nýjan ketil og aðstöðu starfsfólks, alls 70 m2 á einni hæð. Viðbygging nær 5 m út frá núverandi gafli og fer því 1.13 m út fyrir núverandi lóðarmörk og um leið núverandi byggingareit skv. skipulagi. Því er jafnframt sótt um leyfi til stækkunar lóðar er þessu nemur og um leið færslu á byggingareit til samræmis. Lóð fer úr 6340 m2 í 6387 m2 við þessa breytingu. Kvöð er um lagnasvæði fráveitu fyrir sunnan þessa viðbyggingu frá sveitarfélagi, en þessi viðbygging verður utan þessa lagnasvæðis.
b) Skyggni verði byggt vestan við hús, á móts við suðurenda. Skyggni nær 5 m út frá húsi sbr. teikningar. Stærð skyggnis er 85.2 m2, á einni hæð. Skyggni verður með lokun þannig að það verði vind- og regnhelt. Í skyggni verður lageraðstaða fyrir hráefni lýsisbræðslu, en þró er inn í skyggni.
Hér með er óskað eftir afstöðu bygginga-og skipulagsnefndar vegna ofangreindra framkvæmda.
7. Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ölfuss, 2002-2014.
Tillaga að bréfi til umhverfisstofnunar, vegna umsagnar Skipulagsstofnunar á afgreiðslu breytingartillögunnar til umhverfisráðuneytisins. Þar kom fram að Skipulagsstofnun leggst gegn virkjun við Bitru.
Lagt fram svarbréf til umhverfisráðherra, til umfjöllunar.
Bréfið lagt fram til umræðu og afgreiðslu. Lagt til að bréfið fari til afgreiðslu í bæjarráði.
Afgreiðsla: Samþykkt að bréfið fari til umhverfisráðherra sem svar við athugasemdum Skipulagsstofnunar frá 9. apríl 2010. Hróðmar Bjarnason sat hjá og lagði fram bókun:
Athugasemd/bókun
Í bréfi sveitarstjórnar Ölfuss til Umhverfisráðherra gerir sveitarstjórn athugasemdir vegna umsagnar Skipulagsstofnunar um breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014 vegna Bitru/Ölkelduháls. Undir lið C, Útivist, ferðamennska, landslag og sjónræn áhrif getur sveitarstjórn ekki tekið undir athugasemdir skipulagsstofnunar þess efnis að “…Þrátt fyrir áform um að draga úr sjónrænum áhrifum mannvirkja, telur Skipulagsstofnun óhjákvæmilegt og eðli málsins samkvæmt að þau muni sjást víða að, hafa veruleg neikvæð sjónræn áhrif og breyta landslagi lítt raskaðs, náttúrulegs svæðis í ásýnd iðnaðarsvæðis”.
Í athugasemd sveitarfélagsins kemur ekkert nýtt fram á hvaða hátt þessar framkvæmdir munu ekki valda neikvæðum sjónrænum áhrifum og breyta landslagi lítt raskaðs svæðis í iðnaðarsvæði. Framkvæmdir sem myndu eyðileggja þá upplifun sem útivistar- og ferðamenn hafa af svæðinu í dag. Kröfur um hertari hljóðstig og lyktarmengun eins og fram kemur í svari sveitarfélagsins hafa engin áhrif á sjónræn áhrif.
Virkjun við Bitru/Ölkelduháls hefur þegar fengið falleinkunn hjá Skipulagsstofnun. Sköpum sátt um svæðið með því að skilgreina það áfram sem lítt snortið útivistarsvæði og förum fram á það við Orkuveitu Reykjavíkur að þeir færi landið aftur í þann búning, sem það var áður en innrás þeirra hófst.
8. Leyfi fyrir móttökudiski á frístundahús, Króki Arnarbæli.
Erindi frá: Pétur Esrason, Krók,i Arnarbælishverfi
Óskað eftir leyfi frá skipulags- og byggingarnefnd fyrir uppsetningu á móttökudiski á frístundahús að Króki við Arnarbæli.
9. Sjóvarnir við Kampinn, á svæði um 200 m neðan golfvallar.
Fleira ekki gert. Fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:00.
Fundarritari Sigurður Jónsson.

