Skipulags- byggingar og umhverfisnefnd

 

 Fundargerð þriðjudaginn 29. júní 2010 skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar kl. 08:15 í Ráðhúsi Ölfuss.
 
 

Mættir:

Anna Björg Níelsdóttir, formaður,

Gauti Guðlaugsson,

Sigríður Lára Ásbergsdóttir,

Þór Emilsson,

Guðmundur Oddgeirsson.

 

Dagskrá:

Formaður bauð fundarmenn velkomna á fyrsta fund og setti fund.

 

Umhverfismál.


Undir 1. lið kom Gunnþór K. Guðfinnsson inn á fundinn.
 
1.         Í bæjarráði 11. mars s.l. ver tekið fyrir erindi Skógræktar- og uppgræðslufélag Ölfuss þar sem sótt er um land fyrir skógrækt á svæði á Hafnarsandi.
 

Óskað er eftir að landið sé á skipulögðu skógræktarsvæði svo skógurinn þurfi ekki að víkja fyrir öðru skipulagi síðar.

 

Bæjarráð mælir með því að skógræktar- og uppgræðslufélag Ölfuss fái 80 ha svæði norðvestan við Þorlákshöfn til afnota. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari úrvinnslu.

 

Erindið var tekið fyrir í skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd þann 18. mars s.l.

 

Erindi frá bæjarráði, 11. mars 2010, erindi frá Skógræktar- og uppgræðslufélagi Ölfuss þar sem sótt er um 80 ha landssvæði norðvestan við Þorlákshöfn, ofan Suðurstrandsvegar. Bæjarráð mælir með því að Skógræktar- og uppgræðslufélag Ölfuss fái 80 ha svæði norðvestan við Þorlákshöfn til afnota. Málinu vísað til skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar.

Umsögn: Tillaga að afmörkun svæðisins nær til vesturs inn á vatnsverndarsvæðið og að vatnsbóli fyrir Þorlákshöfn. Óskað er eftir 80 ha svæði í einni heild samkvæmt uppdrætti sem fylgir með. Í greinargerð með endurskoðuðu aðalskipulagi er gert ráð fyrir skógræktarsvæðum með ákveðnum hugmyndum. Innan svæða geti verið útvist, reiðleiðir og annað. Úthlutun til félagasamtaka að taka að sér skógrækt á svæðinu er bundin því að stefnumörkun haldi sér og að svæðin verði opin fyrir uppbyggingu útivistar og leiða um svæðið.

 

Afgreiðsla: Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir m.a. skógrækt á opnu óbyggðu svæði norðan við byggðina. Innan þess svæðis getur verið skógrækt, reiðleiðir, rjóður fyrir bekki og borð, leiksvæði og ýmiskonar útivist. Við stækkun bæjarins getur komið til að bærinn stækki til norður og þá inn á svæðið. Umbeðið svæði nær inn á vatnsból bæjarins.

 

Tekið er vel í hugmyndina að finna svæði til skógræktar. Rætt verði við fulltrúa frá Skógræktar- og uppgræðslufélagi Ölfuss um framvindu málsins.

 

Afgreiðsla frá síðasta fundi.: Kynning fór fram á uppgræðslumálum við Þorlákshöfn. Hrönn Guðmundsdóttir kynnti sjónarmið í skógrækt við Þorlákshöfn. Lagt til að skoða heilstæðan reit, frá gatnamótum við Eyrarbakkaveg og niður að svæðinu norðan við bæinn. Samþykkt að hefja strax úthlutun á svæði fyrir skógrækt til lengri tíma, minni reitum í senn sem nái að lokum að Þorlákshöfn.

 

Umsögn: Mikilvægt er að vinna verði sett í þetta mál og afmarkaður reitur fyrir skógræktina. Skoðað verði með minni reiti í senn sem þó þannig að hægt sé að vera með tengingu á milli þeirra.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Boðað verði til fundar með fulltrúa Skógræktar- og uppgræðslufélagi Ölfuss og umhverfisstjóra Ölfuss, þar sem land verði afmarkað og áfangaskipt.

 

Byggingarmál.

 

2.         Varðar óleyfisframkvæmdir við endurbyggingu skálans Bæli.

 

Í dag 25. júní 2010, voru framkvæmdir við byggingu skálans stöðvaðar, sjá ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998 m. sbr., greinar 209.

 

Hvað ber að gera, eigi að lagfæra skálann eða byggja nýjan.

 

1.      Leyfi landeiganda skal liggja fyrir í báðum tilfellum. Fram komi í samningi við landeiganda hvað heimilt er að vera með stóran skála, landið sem skráð er undir skálann er 700 m2.

2.      Leggja skal inn teikningar af byggingu nýs skála eða burðarþolsteikningar sé verið að breyta burðarþoli eldri mannvirkja. Byggingarreglugerð segir að fara skuli eftir reglum sem eru í gildi á hverjum tíma þegar um er að ræða öryggis- og heilbrigðismál. Í gr. 2.2 og einnig í gr. 12.8 í byggingarreglugerðinni nr. 441/1998 m.sbr. er fjallað um byggingar sem byggðar voru fyrir gildistöku hennar. Túlkun Skipulagsstofnunar er að fara skuli eftir lögum og reglum á hverjum tíma þegar átt er við öryggis- og heilbrigðismál.

3.      Leggja skal inn aðalteikningar og skráningartöflu fyrir húsið.

4.      Leggja skal inn burðarþolsteikningu fyrir húsið.

5.      Leggja skal fram byggingarstjóra yfirlýsingu og einnig vottorð um ábyrgðartryggingu hans.

6.      Uppáskrift húsasmíðameistara með viðurkenningu á landsvísu.

 

Hvað er næst í málinu:

1.      Leggja fram þinglýstan samning er segir til um heimild fyrir landnotkun og byggingu skálans, frá landeiganda. Fram komi að landeigandi heimili þessa byggingu og að göng verði lögð fram í nafni Skátafélagsins Kópa.

2.      Aðalteikningar lagðar fram. Gæta skal að öryggismálum eins og brunavörun og flóttaleiðum úr húsinu.

3.      Burðarþolsteikningar lagðar fram. Heimilt er eftir að burðarþolshönnuður hefur yfirfarið þær framkvæmdir sem komnar eru, að hann samþykki þær eða óski eftir lagfæringum. Heimilt verði að halda áfram að því marki að loka húsinu, þ.e. klæða þak og veggi að utan, en aðgengi verði að innan að öllu burðarbitum og festingu. Þá skulu burðarþolsteikningar vera tilbúnar og kallað til úttektar. Staðsetning hússins er á hól undir fjallshlíð og til fjalla. Við burðarþolshönnun skal taka sérstakt tillit þessa.

4.      Byggingarstjóri er áminntur um það að fara eftir byggingarreglugerð og kalla til úttekta eftir 48. gr. þeirrar reglugerðar.

5.      Einnig minnt á að fráveita hvort sem verður kamar eða í rotþró, skal unnið í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Birgir Þórðarson.

Með er blað um stöðvun framkvæmda og ljósmyndir er sýna stöðuna í dag.

 

Þess er vænst að farið verði eftir settum lögum og reglugerðum við þessa framkvæmd, sem ber að virða, hvort sem byggt er fjallaskáli eða í þéttbýli.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Málið er í ferli.

 

3.         Sótt er um stöðuleyfi fyrir tengihús vegna borholu  sem stendur  á lóðinni Árbær 6 lnr:171666, Hildiþórsgrunni.

Húsið er 9,2 m2 og er tengihús fyrir vatnsveitu Árborgar. Teikningar liggja fyrir, frá Verkfræðistofu Suðurlands, dagsettar 22. júní 2010.

 

Afgreiðsla: Vatnsveita Árborgar er með heimild til vatnstöku undir rótum Ingólfsfjalls, í landi sem Árborg á. Húsið fellur að þeim framkvæmdum sem vatnsveitunni er heimilt að vera með og hefur fengið umsögn frá heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Byggingarfulltrúi hefur afgreitt erindið samþykkt.

 

4.         Breytingar á innra skipulagi Unubakka 4, þeim hluta sem áður var gistiheimili í á 2. hæð og þeim hluta sem sami eigandi á, á jarðhæð. Fyrirhugað að þarna verði vinnustaður fyrir þá sem eru með skerta vinnugetu, VIST.

 

Afgreiðsla: Byggingarfulltrúi og slökkviliðsstjóri hafa fylgst með breytingum og tekið mannvirkið út. Framkvæmdir og breytingar á teikningum eru samþykktar, enda eru þær í samræmi við reglugerðir og hafa verið kynntar meðeigendum í húsnæðinu.

 

Skipulagsmál:

 

5.         Núna erum við með breytinguna á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014 í afgreiðslu hjá umhverfisráðherra. Skipulagsstofnun hefur samþykkt að aðalskipulagið verði samþykkt en með því að Bitra verði tekin út. Skipulagsstofnun hefur bent á að frekari rannsókna þurfi við á svæðinu og mælt með því við sveitarfélagið að umrætt iðnaðarsvæði sé skilgreint sem rannsóknarsvæði í aðalskipulagi en ekki virkjunarsvæði.

 

Meðfylgjandi er síðasta bréf frá Skipulagsstofnun til umhverfisráðherra, en við fyrri athugasemdum Skipulagsstofnunar, sendi sveitarfélagið inn til ráðherra bréf með rökstuðningi við hvernig m.a. væri tekið á sjálfbærri þróun og fl. Frestur er hjá sveitarfélaginu til 1. júlí n.k. að gera athugasemd við bréfið.

 

 Umsögn: Tillaga að breytingum á Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss, 2002-2014, vegna Bitruvirkjunar, Hellisheiðavirkjunar, iðnaðarsvæða við Þorlákshöfn og Gráuhnúka, niðurfellingu flugvallar, breytingar á vatnsverndarmörkum og akstursíþróttasvæðis.
Minnispunktar varðandi svör Skipulagsstofnunar dags. 10. júní 2010.

·         Sýna þarf fram á orkuvinnslusvæði fyrir fyrirhuguð iðnaðarsvæði vestan Þorlákshafnar.  Skipulagsstofnun fer ítrekað fram á það að sýna þurfi svæði hvaðan orka á að koma til að fóðra svæðin.  Að því leyti er ekki nóg að sýna rannsóknarsvæði.

·         Vinnslugeta svæðisins skv. Orkustofnun er 710 MWe. Mat og er núverandi rafmagnsframleiðsla á Hengilssvæðin ásamt áætlunum um frekari virkjanaframkvæmdir er lægra en mat Orkustofnunar.  Það bendir til að ekki sé verið að ganga á jarðhitageyminn og endurnýjun hans. 

·         Við vinnu við gerð aðalskipulags er markmiðið að stuðla að sjálfbærri þróun.

·         Í greinargerð kemur fram að ítreka skal að endanleg ávörðun um að fara í virkjanaframkvæmdir á ákveðnu svæði byggir á því að niðurstöður úr rannsóknaborunum sýni að svæðið standi undir fyrirhuguðum áætlunum. Það er ekki hagur neins að fara í óhagkvæmar virkjanaframkvæmdir.

·         Mótsögn í máli Skipulagsstofnunar þegar hún fjallar um áhrif Bitruvirkjunar á jarðhitageyminn.  Skipulagsstofnun telur að óvissa sé ríkjandi á jarðhitageyminn vegna Bitruvirkjunar en nefnir enga óvissu vegna Gráuhnúka eða Hverahlíð.

·         Virkjanasvæði á Bitru í takt við Rammaáætlun 2 sem sýnir mögulegt orkuvinnslusvæði við Bitru og Gráuhnúka.

 

Áhrif á útivist og ferðamennsku eru talin vera neikvæð en lagðar eru fram margháttaðar mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum, þ.e. sýnileiki mannvirkja og lagna, nýjasta tækni verði ávallt beitt til að bæta hljóðvist, sveitarfélagið setur kröfur þess efnis að hljóðvist verði ávallt undir mörkum sem Umhverfisstofnun setur varðandi útivistarsvæði.  Kröfur um hreinsun brennisteinsvetnis og ný gerð kæliturna.

 

Afgreiðsla: Tillaga að svarbréfi til umhverfisráðherra, lesin upp og samþykkt.

 

6.         Ökukennarafélag Íslands óskar eftir svæði við Bolöldur til að vera með æfingarbrautir á. Set hér með uppkast af samningi sem ég setti upp 18. maí s.l, en eftir að fá umfjöllun í skipulagsnefnd og hjá bæjarstjórn. Búið var að taka jákvætt í málið, en vegna kosninganna fór málið í bið.

 

Afgreiðsla: Samþykkt hefur verið að finna stað fyrir æfingarbrautina og setja það svæði inn í endurskoðað aðalskipulag Ölfuss 2010-2022. Einnig að við gerð deiliskipulags fyrir svæðið, verði tekið inn það svæði sem ætlað er fyrir vélhjólaakstur við Bolöldur. Mælt með að samningurinn verði undirritaður.

 

7.         Lúxus Ævintýrareisur kt. 5601032390 – fjórhjólaferðir á Hengilvæði – möguleikar og samvinna

           

Fjórhjólaleiga sem setti sig niður við Litlu Kaffistofuna, óskar eftir að fá svæði til að aka á við Hengilinn. Búið var að stöðva akstur þeirra við Engidalskvísl, þar voru þeir inni á vatnsverndarsvæði. Unnið hefur verið með umhverfisnefnd Orkuveitu Reykjavíkur í skilgreiningu á notkun svæðisins s.s. við Engidal og við Hengladals, en þar hafa þeir verið að keyra í ánni.

 

Lúxus Ævintýrareisur hafa starfrækt fjórhjólaferðir frá Bolöldusvæði í 3 ár eða síðan jan. 2007.

Með góðum árangri og samstarfi við ferðaskrifstofur á höfuðborgarsvæðinu hefur verið boðið upp á fjórhjólaferðir sem viðbótar ferðaþjónustu á Bölöldu og Hengilsvæði þar sem ferðaskrifstofurnar notast við hesta, fjórhjól, Hellisheiðarvirkjun og jeppaferðir á Hengilsvæðinu og nágrenni.

Vinsælustu leiðirnar hafa verið Jósefsdalurinn, Bláfjallasvæðið og Engidalsáin og hefur mesta aukningin verið í Engidalsánni. Ástæða vinsældar hennar er að fólk nýtur þess að keyra í ám. Fyrirspurn er um þúsundvatnaleiðina komi til greina, þar sem hægt er að komast þar í árfarveg, í stað Engidalsá?

Einnig er staðreynd að svæðið heim að Ölkelduháls er með spennandi náttúru og er  spennandi fyrir útlendinga sem vilja fara í heilan dag á fjórhjóli að hægt væri að keyra niður að Þingvallavatni og komast e-n veginn af pípuleiðinni alla leið til baka heim að Litlu Kaffistofunni.

Það virðist vera að færast í aukanna áhugi ferðamanna að sjá landið á fjórhjólum frekar enn að sitja inn í bíl.

 

Mikilvægt er fyrir fyrirtækið að vinna þetta skipulega með sveitarfélaginu, hvar má vera í framtíðinni og jafnvel breytt leiðum eftir vinnuframkvæmdum Orkuveitunnar til að vera sveigjanlegur og ekki fyrir á svæðinu að hverju og einu sinni.

Fyrirtækið vill vinna þetta með sveitarfélaginu til langs tíma og virða þær leiðir sem það notar með samþykki þess.

 

Staðsetning fjórhjólaferða á Hengilsvæði er góð vegna nálægðar við Reykjavík og mjög algengt að hópar komi til fyrirtækisins í hálfan dag og eigi svo frítíma í Reykjavík það sem eftirlifir dags.

Óskað er eftir að finna framtíðarlausn fyrir aðstöðu og hvar megi keyra til að ekki fari til spillis 3 ára erfiði að læra á rekstur fjórhjólaferða því grundvallarskilyrði er að geta haft aðgengi fyrir reksturinn á Hengilsvæðinu og nágrenni.

 

Afgreiðsla frá síðasta fundi sem málið var rætt:. Málin voru kynnt og rædd. Samþykkt að fundað verði með Orkuveita Reykjavíkur um landnotkun innan þeirra svæðis. Unnið verði áfram í stefnumörkum um þetta mál í endurskoðun aðalskipulagsins.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd eigi fund með umhverfisnefnd Orkuveitu Reykjavíkur þar sem landnýting verði rædd.

 

 

8.         Um skipulagsmál við Þorlákshöfn, þá bíður eitt skipulag eftir nýrri afgreiðslu í nefndinni. Búið var að vinna deiliskipulag er náði til norðursvæðisins í Þorlákshöfn, byggð norðan við Básahraun og að hringtorginu við nýja innkeyrslu í bæinn. Vegagerðin gerði athugasemd við aðrein frá Suðurstrandarvegi, þegar komið er vestan frá inn á þjónustulóð sem er við hringtorgið og hugsuð fyrir bensínstöð. Vg taldi að hætta væri að þessari aðrein fyrir umferðina. Búið var að benda á að víða eru svona aðreinar að þjónustulóðum við jafnmikla eða þar sem meiri umferð fer um. Nú er það nefndarinnar að ákveða hvort sleppa eigi aðreininni og auglýsa það þannig í B-deild Stjórnartíðinda vegna athugasemda frá Vg og láta síðan málið koma upp aftur þegar einhver sækir um lóðina og vill fá þessa aðrein, eða hafa hana inni og láta koma fram athugasemdir Vg og freista þess að Skipulagsstofnun samþykki það.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Mikilvægt er að frá Suðurstrandarvegi, þegar komið er vestan frá, verði aðrein að þjónustulóðinni.  Samþykkt að auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda þannig deiliskipulag með athugasemdum Vegagerðarinnar.

 

            Staðan á endurskoðun aðalskipulags Ölfuss 2010-2022 til kynningar.

 

            Staðan:

            Samfélag og byggð

Opin svæði til sérstakra nota

-         Vélhjólaaksturssvæði norðan Þorlákshafnar. 

-         Málið var tekið fyrir í skipulags-, og byggingar og umhverfisnefnd í apríl 2008. Fram kemur að ekki er heimilt að vera með akstursíþróttir á svæðinu fyrr en skipulag svæðisins og merking brauta er að fullu lokið. Svæðið skal skipulagt samkvæmt lögum.  Fyrir liggur samningur um stækkun svæðisins, dagsettur 9. desember 2008. Fram kemur að samningurinn er til 10 ára, eða til 31. desember 2018. Samningurinn samþykktur í bæjarráði 20. nóvember 2008. Samningurinn er uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara. Komi til uppsagnar skal Sveitarfélagið Ölfus eftir fremsta megni leitast við að finna nýtt svæði undir starfsemi Vélhjóladeildar Umf. Þórs. Sveitarfélagið Ölfus mun aðstoða Vélhjóladeild Umf. Þórs með uppbyggingu á hinu nýja svæði skv. nánara samkomulagi milli aðila. Í 2. gr. 2. mgr. segir að Umf. Þór er heimilt að hefja undirbúning á svæðinu strax að lokinni undirritun samnings, en akstursíþróttir eru ekki heimilar fyrr en skipulagningu svæðisins og merkingu brauta er að fullu lokið.

-         Kynna þarf málið fyrir aðilum norðan Þorlákshafnar, íbúum og þeir sem eru með sumarhús.

A.      Atvinna
Iðnaðarsvæði

-         Iðnaðarsvæði í mynni Grændals og Reykjadals.  Textabreyting, núverandi texti gerir ráð fyrir allt að 10 MW?  Beðið eftir sjónarmiðum Sunnlenskrar Orku.  Fundur 11. maí.

-         Spurning hvort rýmka þurfi skilmálana.

-         Afmörkun iðnaðarsvæðis við Gráuhnúka.  Tillaga um að afmörkun svæðis verði breytt í samræmi við afmörkun svæðis eins og hún er sýnd í matsáætlun fyrir Gráuhnúka.

B.     Grunnkerfi
Reiðleiðir

-         Tillaga um að reiðleið um Jósepsdal verði tekin út þar sem þetta er fáfarin og erfið reiðleið og ekki til þess fallin að sýna í aðalskipulagi sem reiðleið.
-         Tillaga að reiðleið út fyrir vélhjólaaksturssvæðið norðan Þorlákshafnar verði austan megin.(Kostur A)
C.     Náttúra og verndarsvæði
Hengill

-         Útivist á Henglinum:  Bætt hefur verið við markmið um náttúruverndarsvæði að unnið verði útivistarskipulag fyrir Hengilssvæðið þar sem settar verða umgengnisreglur um svæðið. 

-         Athuga með að halda hverfisverndinni á Hafnarskeiðinni og tilgreina ákvæði hverfisverndar í greinarger sbr. erindi frá 27. apríl 2010.  Funda þarf með landeigendum um málið.  Athuga þarf með aðstöðu fyrir seglbrettaiðkun.

-         Umfjöllun um sjóvarnir hefur verið bætt í kaflann um náttúruvá.

D.     Næstu skref
 

-         Tillaga sett í umsagnarferil þegar breyting sem er í ferli hefur verið staðfest.

-         Skipulagstillaga í drögum er aðgengileg á heimasíðu Landmótunar og heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

Afgreiðsla frá síðasta fundi: Farið yfir stöðu mála. Tillögur eru samþykktar.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Samþykkt að haldinn verði sérstakur fundur um endurskoðun aðalskipulagsins og í framhaldi verði fundað með hagsmunaaðilum, Orkuveitu Reykjavíkur, Rarik um Sunnlenska orku og Vegagerðinni.

 

9.         Erindi frá 365 miðlum um blaðakassa fyrir Fréttablaðið.

 

Kynning á þeim breytingum sem eru hjá 365 í sambandi við Fréttablaðið.

Frá og með næstu mánaðarmótum verður frídreifingu Fréttablaðsins hætt í verslum og  bensínstöðvum um land allt.  Blaðið verður boðið til sölu þess í stað hjá þeim á sama hátt og önnur dagblöð.

Í staðinn er verið að bjóða sveitarfélaginu að setja upp kassa, þar sem íbúar geta nálgast blaðið þeim að kostnaðarlausu.

Það þýðir að það verður engin fækkun á blöðum í Þorlákshöfn en vonandi verður þetta til þess að blöðin dreifast meira á meðal íbúa bæjarins.

 

Umsögn: Veitt var leyfi til uppsetninga á nokkrum blaðakössum, þar sem hætt var að vera með blaðið hér til dreifingar. Óskað er eftir að settir verði upp fleiri blaðakassar.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Samþykkt verði að allt að 10 blaðakassar verði settir upp í Þorlákshöfn, til að dreifingin nái sem best til allra íbúa bæjarins.

 

 

10.       Efni: Umsögn um deiliskipulagsbreytingu, stækkun borsvæðis austan Húsmúla, vegna niðurrennslis.

 

Um er að ræða sjöundu breytingu á deiliskipulagi sem upphaflega var samþykkt 24. júní 2004 og öðlaðist gildi 20. júlí 2004. Gildandi deiliskipulag var samþykkt 29. janúar 2009 og öðlaðist gildi 3. mars 2009. Breytingin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Ölfuss 2002-2014.

 

Um er að ræða stækkun á borsvæði vegna niðurrennslis sem er vestan lóðar fyrir vélar 5 og 6. Svæðið er um 2.2 ha en verður eftir breytingu 4.7 ha. Ástæða breytingarinnar er að fyrirhugað er að bora frekari niðurrennslisholur á svæðinu til norðausturs frá núverandi borsvæði. Vegna stækkunar borsvæðis hliðrast gönguleið sem liggur um svæðið til norðurs, út fyrir borsvæðið.

 

Greinargerð og skipulagsskilmálar sem voru samþykktir með breytingum 21. nóvember 2008, gilda áfram.

 

Á uppdrætti koma fram umhverfisáhrifin.

 

Afgreiðsla: Málið er til umsagnar hjá Skipulagsstofnun. Erindið er innan aðalskipulags með breytingum á deiliskipulagi sem fyrir er. Stækkunin er til að ná yfir stærra svæði, til að tryggja að öruggt verði með niðurrennslissvæði á affalsvatni frá virkjuninni. Mælt með að heimila deiliskipulagsferil, enda verði farið að lögum og reglugerðum þar um.

 

11.       Erindi frá Skeljungi um uppsetningu á verðskilti við afgreiðslu Orkunnar við Óseyrarbraut.

Tillaga að staðsetningu verðskiltis við eldsneytisafgreiðslu Orkunnar. Um er að ræða 5,4 m hátt skilti.

Umsögn: Óska eftir að afgreiða skiltið eins og um girðingu væri að ræða og skiltið verði í sömu fjarlægð frá lóðarmörkum og hæð þess er.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Byggingarreglugerð fjallar um mannvirki við lóðarmörk s.s. girðingar. Mannvirki skulu vera jafnlangt frá lóðarmörkum og hæð þess.

 

12.       Sjóvarnir við Kampinn, á svæði um 200 m neðan golfvallar.

 

Erindið var til umfjöllunar á fundi skipulags- byggingar- og umhverfisnefndar 11. maí 2010

 

Lögð fram greinargerð um tilkynningu til Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdin sé matskyld.

 

Afgreiðsla: Samþykkt að tilkynning um fyrirhugaða framkvæmd fari til umsagnar hjá Skipulagsstofnun og unnið verði breytt deiliskipulag fyrir svæðið.

 

Fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunar, bréf dagsett 18. júní 2010. Þar kemur fram að stofnunin gerir ekki athugasemdir við umfang og áherslur í umhverfismati skipulagstillögunnar. Skipulagsstofnun hefur ekki yfirfarið deiliskipulagstillöguna.

 

Deiliskipulagstillagan og greinargerð lögð fram til samþykktar til auglýsingar í 6 vikur og til umsagnar hjá lögboðnum umsagnaraðilum.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Samþykkt verði að setja deiliskipulagið í auglýsingu.

 

13.       Til kynningar umsögn lögmanns Skipulagsstofnunar um endurgerð mannvirkja eftir skemmdir í jarðskjálfta.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt. Fram kemur í áliti lögmanns Skipulagsstofnunar að við endurgerð mannvirkja skuli fara eftir gildandi reglum (lögum og stöðlum) við endurbætur vegna krafna um öryggis- og heilbrigðismál. Þessi krafa nær fram yfir lög og reglur sem í gildi voru þegar viðkomandi mannvirki var reist.

 

14.       Erindi frá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. Kærð er útgáfa lokaúttektar fyrir starfsmannahús.

 

Afgreiðsla: Málið kynnt og lögð fram greinargerð, rökstuðningur við útgáfu lokaúttektar vottorðs.

 

 

Inn á fundinn komu fulltrúar landsnets, Ólafur Árnason frá Verkfræðistofunni Eflu og Ingólfur Eyfells, deildarstjóri ramkvæmda og Sigurjón Ísaksson, frá verkfræðistofunni Eflu.

Einnig komu á fundinn, Sveinn Steinarsson, formaður bæjarráðs og Guðmundur Baldursson, bæjarfulltrúi.

 

15.       Landsnet óskar eftir kynningarfundi, fyrir auglýsingu á umhverfismati fyrir Þorlákshafnarlínur 2 og 3. Fyrirhugað er að auglýsa í byrjun júlí, svo funda þyrfti með skipulagsnefnd og bæjarstjórn, fyrir föstudaginn 2. júlí n.k.

Málið kynnt.
 

Afgreiðsla: Málið kynnt.

 

16.  Önnur mál sem formaður mun kynna. (Fundartími hefur verið þriðji þriðjudagur í mánuði og hefst kl. 08:15).

Fundartími samþykktur.

Samþykkt að fundargögn fari einnig á varamenn.

 

 

Í nefndinni eru:

f. Kosning skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar
Aðalmenn:
Anna Björg Níelsdóttir
Gauti Guðlaugsson
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Þór Emilsson, thoremils@ferrozink.is
Guðmundur Oddgeirsson
Varamenn:
Sveinn Steinarsson
Reynir Guðfinnsson
Harpa Hilmarsdóttir
Kjartan Björnsson
Hróðmar Bjarnason

Formaður:
Anna Björg Níelsdóttir

Varaformaður:
Gauti Guðlaugsson

 

Fleira ekki gert.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:00.

Fundarritari Sigurður Jónsson.


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica