Annar fundur skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar Ölfuss haldinn þriðjudaginn 17. ágúst 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn kl. 08:15.
Fundarmenn:
Anna Björg Níelsdóttir, formaður
Reynir Guðfinnsson
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Þór Emilsson
Guðmundur Oddgeirsson, boðaði forföll.
Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi
Magnús J. Guðmundsson, starfsmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Formaður setti fund, bauð fundarmenn velkomna og gekk síðan til dagskrár.
Dagskrá:
SKIPULAGSMÁL.
1. Staðan í skipulagsmálum.
Núna erum við með breytinguna á aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014 í afgreiðslu hjá umhverfisráðherra. Skipulagsstofnun hefur samþykkt að aðalskipulagið verði samþykkt en með því að Bitra verði tekin út. Skipulagsstofnun hefur bent á að frekari rannsókna þurfi við á svæðinu og mælt með því við sveitarfélagið að umrætt iðnaðarsvæði sé skilgreint sem rannsóknarsvæði í aðalskipulagi en ekki virkjunarsvæði.
Afgreiðsla: Málið er í vinnslu hjá umhverfisráðherra.
2. Samningurinn við Ökukennarafélag Íslands.
Ökukennarafélag Íslands óskar eftir svæði við Bolöldur til að vera með æfingarbrautir á. Set hér með uppkast af samningi sem ég setti upp 18. maí s.l, en eftir að fá umfjöllun í skipulagsnefnd og hjá bæjarstjórn. Búið var að taka jákvætt í málið, en vegna kosninganna fór málið í bið.
Afgreiðsla: Málið í vinnslu hjá bæjarstjórn.
3. Efni: Umsögn um deiliskipulagsbreytingu, stækkun borsvæðis austan Húsmúla, vegna niðurrennslis.
Um er að ræða sjöundu breytingu á deiliskipulagi sem upphaflega var samþykkt 24. júní 2004 og öðlaðist gildi 20. júlí 2004. Gildandi deiliskipulag var samþykkt 29. janúar 2009 og öðlaðist gildi 3. mars 2009. Breytingin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Ölfuss 2002-2014.
Um er að ræða stækkun á borsvæði vegna niðurrennslis sem er vestan lóðar fyrir vélar 5 og 6. Svæðið er um 2.2 ha en verður eftir breytingu 4.7 ha. Ástæða breytingarinnar er að fyrirhugað er að bora frekari niðurrennslisholur á svæðinu til norðausturs frá núverandi borsvæði. Vegna stækkunar borsvæðis hliðrast gönguleið sem liggur um svæðið til norðurs, út fyrir borsvæðið.
Greinargerð og skipulagsskilmálar sem voru samþykktir með breytingum 21. nóvember 2008, gilda áfram.
Afgreiðsla: Er í auglýsingu.
4. Sjóvarnir við Kampinn, á svæði um 200 m neðan golfvallar.
Erindið var til umfjöllunar á fundi skipulags- byggingar- og umhverfisnefndar 11. maí 2010þ
Lögð fram greinargerð um tilkynningu til Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdin sé matskyld.
Afgreiðsla frá fyrri fundi: Samþykkt að tilkynning um fyrirhugaða framkvæmd fari til umsagnar hjá Skipulagsstofnun og unnið verði breytt deiliskipulag fyrir svæðið.
Fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunar, bréf dagsett 18. júní 2010. Þar kemur fram að stofnunin gerir ekki athugasemdir við umfang og áherslur í umhverfismati skipulagstillögunnar. Skipulagsstofnun hefur ekki yfirfarið deiliskipulagstillöguna.
Deiliskipulagstillagan og greinargerð lögð fram til samþykktar til auglýsingar í 6 vikur og til umsagnar hjá lögboðnum umsagnaraðilum.
Afgreiðsla: Er í auglýsingu.
5. Erindi frá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.
Kærð er útgáfa lokaúttektar fyrir starfsmannahús.
Afgreiðsla: Málið er í vinnslu hjá lögmanni sveitarfélagsins og kallað eftir að því ljúki sem fyrst.
6. Erindi frá lögmanni Magnúsar Margeirssonar vegna Faxabrautar 6.
Afgreiðsla: Málið er í vinnslu hjá lögmanni sveitarfélagsins og kallað eftir að því ljúki sem fyrst.
7. Breyting á landnotkun á frístundasvæði við Arnarbæli, merkt F17 í aðalskipulagi, breytt í landbúnaðarsvæði.
Afgreiðsla: Málið í vinnslu.
8. Umsögn um frummatsskýrslu fyrir Þorlákshafnarlínur 2 og 3.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Umsögn tekin fyrir í bæjarstjórn.
9. Fyrirspurn frá eiganda að Riftún.
Umsókn um styrkingu slóða í landi Riftúns í Ölfusi
Afgreiðsla: Málið kynnt. Landeiganda verði boðið að sitja fund með nefndinni og kynna sitt mál.
10. Erindi frá Jóhanni Ágústssyni, f.h. Gunnar Arnarson ehf.
Óskað eftir leyfi til að flytja hús frá lóð úr landi Ingólfshvols, landnúmer 198842 til Strýtu, landnúmer 171805, samkvæmt meðfylgjandi afstöðumynd. Húsið á að nýtast sem starfsmannahús. Einnig er óskað eftir byggingarleyfi fyrir ofangreint hús ásamt framkvæmdaleyfi til að leggja veg og lagnir að húsi.
Umsögn: Erindið kallar á deiliskipulagsbreytingu.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Heimilað verði að gera deiliskipulag sem nær yfir land Strýtu og Grænhóls að staðsetja þar frístundahús. Ekki er heimilt að vera með fasta búsetu, lögheimili í frístundahúsi eða starfsmannahúsi.
11. Breytingar á notkun húss, Klettagljúfur 2.
Umsókn um að nýta íbúðahúsnæðið Klettagljúfur 2 sem félagsheimili.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Málshefjanda verði boðið að sitja fund með nefndinni og kynna sitt mál.
12. Fyrirspurn um fráveitumál er tengjast Klettagljúfri 2 og öðrum mannvirkjum í 1. áfanga úr landi Gljúfurárholts.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Byggingarfulltrúa falið að svara erindinu.
13. Erindi frá Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar, f.h. Lýsis.
Umsókn um að tekið verði fyrir deiliskipulagstillaga af Hafnarskeiði 2 (áður 28-30).
Umsögn: Uppdráttur uppfyllir ekki ákvæði um deiliskipulagsuppdrátt. Umhverfislýsing skal vera með í greinargerðinni. Farið er út fyrir gildandi deiliskipulag með byggingarreit og byggingarmegn, sem ekki kemur fram í greinargerð eða í erindi með teikningum til að rökstyðja hvers vegna farið er út fyrir reit. Almennt eru ákvæði um hæð mannvirkja við lóðarmörk, sem virðist vera farið yfir með innsendum gögnum.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Fundað verði með Lýsi hf um stafsemi sem fyrirhuguð er á lóðinni.
BYGGINGARMÁL.
14. Fyrirspurn frá eiganda að Egilsbraut 12.
Fyrirspurn um það hvort byggja megi skýli framan við aðalhurð til að verjast slagregni og leka inn með hurð.
Umsögn: Framhlið húsa er yfirleitt sett í byggingarlínu. Óheimilt er að stækka hús út fyrir þessa byggingarlínu. Við höfum heimilað að setja skyggni eða stoðveggi. Óheimilt er að loka þetta skýli af eða setja hurð fyrir það, þannig að verið sé að stækka hús út fyrir byggingarreit.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Erindið samþykkt.
15. Erindi um byggingu sólstofu við Sunnuhvol.
Sótt um byggingu sólstofu, stærð sólstofu verður 51,4 m2. Byggingarnefndarteikningar og burðarþolsteikningar lagðar fram, dagsettar í maí 2010.
Umsögn:
Afgreiðsla: Málið er afgreitt. Reyndar teikningar lagðar fram.
16. Erindi frá Helgi Bollason Thoroddsen. Breyting á eldra húsi að Þurá.
Um er að ræða breytingu á eldra húsi, endurbyggingu og breytingu á inngangi. Framkvæmdin er að hluta hugsuð til að styrkja eldri hluta hússins, auka styrk hússins gegn jarðskjálftum.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Erindið samþykkt.
ÖNNUR MÁL.
17. Erindi frá bæjarráði.
g. Thorsil ehf.
Erindi frá Thorsil ehf þar sem óskað var eftir staðfestingu sveitarfélagsins á staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar fyrir kísilmálmverksmiðju í Þorlákshöfn, sem frestað hafði verið á síðasta bæjarráðsfundi, tekið fyrir að nýju. Þá hefur einnig verið óskað eftir því að sveitarfélagið heimili fyrirtækinu að láta fara fram á næstu vikum grunnrannsóknir vegna mats á umhverfisáhrifum á lóðinni og í nágrenni hennar.
Í samræmi við fund sem bæjarstjórn átti með fulltrúum Thorsil ehf vegna málsins 2. júlí sl. og tölvupóst fyrirtækisins dags. 7. júlí sl. er leiðrétt staðsetning lóðarinnar samkvæmt lóðarblaði samþykkt samhljóða. Einnig samþykkt samhljóða að heimila fyrirtækinu grunnrannsóknir á lóðinni. Skipulags- og byggingafulltrúa falið að afhenda fyrirtækinu gögn varðandi erindið. Þá var samþykkt að eldri samningur milli málsaðila verði endurnýjaður og gildi til haustsins.
Umsögn:
Afgreiðsla: Málið kynnt.
j. Sveinbjörn Guðmundsson, f.h. BM Vallá ehf.
BM Vallá ehf kt. 450510-0680 sækir um að gera lóðaleigusamning við Sveitarfélagið Ölfus vegna lóðarinnar Nesbraut 5 í Þorlákshöfn. Lóðin var áður í leigu BM Vallá hf sem varð gjaldþrota í maí sl. Nýja fyrirtækið hefur keypt reksturinn af þrotabúinu og hyggst starfrækja áfram á lóðinni vinnslu og útflutning á Hekluvikri.
Samþykkt samhljóða að verða við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna verkið með BM Vallá ehf.
Umsögn: Drög að nýjum lóðarleigusamning.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Fram komi í lóðarleigusamningi ákvæði deiliskipulags um uppbyggingu og frágang á og við lóð.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 10:30.
Fundarritari Sigurður Jónsson.

