Skipulags- byggingar og umhverfisnefnd

 

 

19. fundur skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar

haldinn  í ráðhúsi, þriðjudaginn 18. október 2011 og hófst hann kl. 08:15.

 

 

Fundinn sátu:

Anna Björg Níelsdóttir, Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Þór Emilsson, Hróðmar     Bjarnason, Sigurður Jónsson og Gunnþór Kristján Guðfinnsson.

 

Fundargerð ritaði:  Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

 

 

 

Dagskrá:

 

1. 1011057 - Deiliskipulag starfsmannahús

Auglýst var deiliskipulag fyrir Grænhól 1, Grænhól 2 og Strýtu. Engar athugasemdir komu á auglýsingartímanum. Fyrir liggur umsögn fornleifafræðings.

 

Afgreiðsla: Deiliskipulagið samþykkt.

 

Einnig kynnt teikning af starfsmannahúsi innan lands Strýtu. Fyrir er komið eitt hús og er þetta hús á byggingarreit tvö.

 

Afgreiðsla: Teikningar eru samþykktar.

 
2. 1104036 - Endurskoðun aðalskipulags Ölfuss 2010-2022.

Endurskoðað aðalskipulag Ölfuss 2010-2022 er hjá Skipulagsstofnun í annað sinn eftir að athugasemdum/ábendingum frá Skipulagsstofnun var svarað. Leitað er tilboða í gerð fornleifaskráningar fyrir aðalskipulagið, sem framkvæmt verður á skipulagstímanum. Við staðfestingu á endurskoðuðu aðalskipulagi skal liggja fyrir fornleifaskráning eða framkvæmdaáætlun um gerð hennar.

Í endurskoðuðu aðalskipulagi eru fyrirhugað að setja inn ný hverfisverndarsvæði s.s. Reykjadal, Grændal og svæðin þar við.

Unnið verður að íbúafundi þar sem endurskoðað aðalskipulag verður kynnt og helstu áherslur sem þar koma fram.

 
3. 1106002 - Minnisblað um sorpmál.
Fyrir liggur erindi frá bæjarstjórn til SBU að skoða fyrirkomulag sorpmála, sorphirðingu, flokkun og förgun. Farið hefur verið í kynningarferð til nágrannasveitarfélaga og einnig í fyrirtækin Sorpu, Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustuna. Fyrir liggur skýrsla frá formanni SBU, unnin upp úr þeim upplýsingum sem komu frá sveitarfélögum og fyrirtækjum sem heimsótt voru. Skýrslan rædd og samþykkt að vinna úr henni verklýsingu til að taka afstöðu til hvernig e.t.v. útboði um sorphirðu og flokkun verður háttað.
 
4. 1106022 - Skiltamál

1.    Skiltamál út frá reglum sem hafa verið notuð í 13 ár í Ölfusi. Umræða um hvort heimilt sé að setja auglýsingu frá styrktaraðilum á mannvirki og nefna mannvirki eftir styrktaraðila.

 

Fyrir liggja vinnureglur fyrir Ölfus. Óheimilt er að setja upp auglýsingar frá birgjum, eins og kemur fram í þeim reglum. Öll skilti á mannvirki ber að sækja um. Mikið er um að skilti sem sett eru upp beri einnig nafn birgja. Auglýsingar innan íþróttasvæða geta verið skilti sem snúna að leikvelli og þá tekið fyrir stærð þeirra í heild og frá hvað mörgum aðilum eigi að leyfa. Sér grein komi um skilti frá styrktaraðilum sem sett eru á mannvirki og þau nefnd eftir styrktaraðila. Skýrt þarf að vera hvernig svona auglýsing á að vera, á hún að vera látlaus án mynda eða með mynd, stærð hennar og staðsetning á mannvirkið.

 
5. 1108023 - Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða
Umsagnarfrestur er til 11. nóvember n.k. Lagt er til að með SBU og bæjarstjórn vinni fagaðili í skipulagsmálum að gerð umsagnarinnar.
 
6. 1109012 - Umsögn vegna deiliskipulags Reykjakots II

Tillaga að deiliskipulagi hefur verið auglýst. Engar athugasemdir bárust. Ábending kom frá Skipulagsstofnun um nálægð við veg og að byggingin væri á svæði sem mikill hiti væri á og athuga þyrfti vel hvort fyrirhugað byggingarstæði væri utan hitasvæðis sem opnaðist í jarðskjálftanum 29. maí 2008.

 

Afgreiðsla: Deiliskipulagið samþykkt með ábendingum Skipulagsstofnunar.

 
7. 1109023 - Beiðni um frestun á niðurrifi húss við Árbæjarveg

Erindi rætt.

 

Afgreiðsla: Samþykkt að eigandi beri á eigin kostnað ábyrgð verði heimild fyrir að mannvirkið standi þar til að farið verður í uppbyggingu á Árbæjarveginum, samkvæmt endurskoðun á aðalskipulagi Ölfuss. Þegar komi að því að byggja veginn upp, muni eigandi mannvirkis fjarlægja húsið á sinn kostnað.

 
8. 1109031 - VII. Umhverfisþing 14. október nk. á Hótel Selfoss

 

1.    Ný afstaðið Umhverfisþing og málfundur um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.

 

Á umhverfisþingi var Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands, endurskoðun á náttúruverndarlögum, grunnur að umræðum. Umhverfisþingið byggði á kynningu á Hvítbókinni. Þær breytingar og stefnumið í verndun á náttúru Íslands koma þar fram og er hún til umsagnar. Þrjár málstofnur voru á umhverfisþinginu. Málstofa A, friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar. Málstofa B, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd og málstofa C, útivist, ferðaþjónusta og náttúruvernd. Einnig málstofa D þar sem unga fólkið vann og kynnti síðan niðurstöður sínar.

 

Á málþingi Sambands ísl. Sveitarfélaga var yfirskriftin lífvænlegt umhverfi, félagslegt réttlæti og ábyrg fjármálastjórn. Rætt var um sjálfbærni í sveitarfélögum á Íslandi, lagt út af staðardagskrá 21 og þeim gildum sem þar eru. Sjálfbærni er orð sem er ofnotað og þess ekki gætt að fylgja markmiðum á bak við sem þarf til að uppfylla sjálfbærni. Rætt var um að samþætta gerð aðalskipulags og staðardagskrár 21. Merkileg kynning var á hvernig Reyðarál, Landsvirkjun og sveitarfélög á Austurlandi hafa verið með vöktun á áhrifum frá virkjun við Kárahnúka og uppsetningu Reyðaráls, á samfélagið og náttúruna. Sjá má inni á http://www.sjalfbaerni.is/

Kynntir voru jarðvangar, Geoparks, á Íslandi. Hjá okkur væri hægt að taka t.d. Hengilinn, Selvoginn og fleiri staði inn í svona verkefni. Sveitarfélög vinna að markmiðsmálum til að fá meiri og betri kynningu á sínum sveitarfélögum t.d í loftlagsmálum, stefnumótun til framtíðar, umhverfisvottun sveitarfélaga og fl.

Kynntur var Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, sjá http://www.ferdamalastofa.is/

 
9. 1109050 - Umsókn um byggingaleyfi trönur.

Hafnarnes-Ver sækir um að setja upp trönur til hausaþurrkunar. Ekki er verið að úthluta lóðum en gefin stöðuleyfi til ákveðins tíma til að setja upp hjalla og þá með skilmálum um uppsetningu, aðgengi og umhirðu.

 

Afgreiðsla: Samþykkt að heimila stöðuleyfi fyrir trönur í nágrenni við trönur sem Fiskmark er með, enda verði umhverfi þar við, ekki spillt.

 
10. 1110019 - Gerð strandblaksvallar við Laugaskarð, grenndarkynning
Hveragerðisbær kynnir fyrirhugaða uppsetningu á strandblakvelli austan við sundlaugina í Laugaskarði. Óskað er eftir að Ölfus grenndarkynni nágrönnum innan Ölfus, erindið. SBU ræddi erindi Hveragerðisbæjar um strandblakvöll við Laugaskarð. Falli erindið að gildandi skipulagi fyrir lóðina við Laugaskarð, gerir Sveitarfélagið Ölfus ekki athugasemd við uppbygginguna. Grenndarkynning tekur til breytinga frá skipulagi og skal það kynnt nágrönnum. SBU telur að það sé ekki í verkahring sveitarfélagsins að annast grenndarkynningu innan annars sveitarfélags. Hveragerði hefur með þessu erindi kynnt málið fyrir SBU.
 
11. 1110020 - niðurdæling og jarðskjálftar

Umræður um jarðskjálftahrinu vegna niðurrennslis frá orkuvinnslunni á Hellisheiði. Vegna niðurrennslis við Húsmúla hefur jarðskjálftahrina með  mögum jarðskjálftum kallað á umræðu um málið. Orkuveitan vinnur eftir skipulagi og umhverfismati sem gert var um fyrirhugaðar framkvæmdir. Í gildi er starfsleyfi um niðurdælinguna.

 

Fyrir liggur greinargerð frá Orkustofnun sem var kynnt og rædd. Nefndarmenn hafa áhyggjur af aukinni jarðskjálftavirkni samfara niðurdælingu.

Málið verður áfram skoðað með sérfræðingum í jarðfræði og jarðeðlisfræði út frá upplýsingum sem fyrir liggja um jarðskjálfta á svæðinu og um hvaða áhrif niðurdæling hefur á jarðskjálfta framköllun á niðurennslissvæðum.

 

Í úrskurði Skipulagsstofnunar frá 28. mars 2006, um vöktun, eftirlit.

5. Orkuveita Reykjavíkur þarf að standa fyrir því eftirliti og þeirri vöktun á grunnvatni vegna losunar affallsvatns sem fram kemur í köflum 4.2.2 og 5.2.2 í þessum úrskurði í samráði við Sveitarfélagið Ölfus. Þannig þarf Orkuveitan að fylgjast með grunnvatnshæð í borholum, standa reglulega að hitamælingum úr eftirlitsholum, taka sýni tvisvar á ári til efnamælinga í eftirlitsholum og vatnssýni reglulega til efnagreininga úr kalda grunnvatnskerfinu, m.a. úr Elliðaárstraumnum.

Þá þarf Orkuveita Reykjavíkur að upplýsa framkvæmdastjórn um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu árlega um framkvæmd og niðurstöður vöktunar og eftirlits, 200509008843 auk mælinga á grunnvatnsflæði. Jafnframt þarf Orkuveita Reykjavíkur að greina öll aðalefni í vatni úr völdum eftirlitsholum tvisvar á ári og snefilefni á 5 ára fresti.

 

6. Orkuveita Reykjavíkur þarf að standa fyrir eftirliti og vöktun með jarðhitasvæðinu og jarðhitakerfinu með þeim hætti sem lýst hefur verið í kafla 4.1 og 5.1.1 í þessum úrskurði. Þannig þarf Orkuveita Reykjavíkur almennt að fylgjast með viðbrögðum jarðhitakerfisins við niðurrennsli affallsvatns, standa að vikulegum mælingum á holutoppsþrýstingi og vatnsborði, fylgjast með afli borhola, mæla efnainnihald borholuvökva frá borholum í rekstri og fylgjast með þrýstingi og hita í jarðhitakerfinu a.m.k. einu sinni á ári. Enn fremur þarf Orkuveitan að fylgjast með landbreytingum með nákvæmum landmælingum, auk eftirlits með þyngdarbreytingum.

 
12. 1110021 - Deiliskipulag og reiðhöll

Undir þessum lið, vék Hróðmar Bjarnason af fundi.

Erindið er um að lagfærður verði deiliskipulagsuppdráttar fyrir Velli, Eldhesta ehf. Byggingarreitir fyrir gistihús og reiðhöll nú hnitsettir. Deiliskipulagið þannig tekið fyrir í skipulagsnefnd og bæjarstjórn og sú niðurstaða auglýst.

 

Afgreiðsla: Þar sem um óverulegar breytingar er að ræða á deiliskipulagi, að setja inn hnit fyrir byggingarreit og afmarka þá rétt, er erindið afgreitt jákvætt í SBU. Mælt er með að bæjarstjórn afgreiði það sem óverulega beytingu. Afgreiðsla bæjarstjórnar verði auglýst.

 

Einnig lagar fram teikningar að byggingu reiðhallar innan byggingarreits í deiliskipulagi. Teikningar samþykktar, enda uppfylli þær skilmála þar um.

 
13. 1108006 - Kirkjuferja breyting á minkahúsi í hesthús, mhl 17

Málið kynnt. Heimilt er að breyta byggingum á landbúnaðarsvæði, notkun þeirra að annarri starfsemi sem fellur að landbúnaði.

 

Afgreiðsla: Erindið er samþykkt.

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15.

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________    

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica