Ungmennaráð Ölfuss
Fundur haldinn í Íþróttahúsi mánudaginn 31. október 2011 kl. 17:30
Mættir: Jana Ármannsdóttir, Kristrún Gestsdóttir, Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir, Haukur Andri Grímsson, Sesselja Erna Benediktsdóttir og Valur Rafn Halldórsson
1. Erindisbréf ungmennaráð
Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi sveitarfélagsins fór yfir erindisbréf ungmennaráðs Ölfuss og afhenti ungmennaráðsfulltrúum eintak af erindisbréfinu.
2. Rætt um starf ungmennaráðs
Farið var yfir hvað ungmennaráð hefur gert seinustu ár og hvaða áhrif það hefur haft. Rætt var um mikilvægi þess að ungt fólk taki þátt í mótun nær samfélagsins.
3. Starf vetrarins
Ákveðið var að halda einn viðburð fyrir ungmenni í sveitarfélaginu fyrir jól. Ýmsar hugmyndir komu upp sem verða ræddar betur á næsta fundi.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 18:15

