Ungmennaráð

 

6. fundur Ungmennaráðs Ölfuss 2010-2011

Árið 2011, sunnudaginn  29.maí kl. 20:00 kom ungmennaráð Ölfuss saman til fundar. 

Mættir voru: Bryndís Ósk Valdimarsdóttir, Jana Ármannsdóttir, Kristrún Gestsdóttir og Valur Rafn Halldórsson starfsmaður ráðsins. 

Baldur Rafn og Jóhann Andri boðuðu forföll

Fundargerð ritaði: Valur Rafn Halldórsson

 

Dagskrá:

1.       Bréf frá Menningarnefnd

Þar sem menningarnefnd þakkar ungmennaráði fyrir erindi þess. Mun menningarnefnd hafa samráð við ungmennaráð á næsta ári þegar verið er að skipuleggja menningarviðburði í sveitarfélaginu.

 

Eftirfarandi bókun varðandi bréf menningarnefndar lögð fram:

„Ungmennaráð þakkar menningarnefnd fyrir jákvæð viðbrögð við erindi ráðsins og hlakka fulltrúar ungmennaráðs til þess að aðstoða menningarnefnd með skipulagningu menningarviðburða næsta haust.“

 

2.       Bréf frá Íþrótta- og æskulýðsnefnd

Íþrótta- og æskulýðsnefnd þakkar fyrir erindið og útskýrir stöðu mála varðandi Heilsustígana og flóðlýsingu á gervigrasinu. 

 

Eftirfarandi bókun varðandi bréfið lögð fram:

„Lýsir ungmennaráð ánægju sinni með fyrirhugaða Heilsustíga þrátt fyrir að ekki hafi tekist að fjármagna þá í ár.  Vonast ráðið þó þess  að hægt sé að fara í framkvæmd á þeim sem fyrst og skorar ungmennaráð á íþrótta- og æskulýðsnefnd að ýta á eftir þessum málum. Einnig þakkar ungmennaráð íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir skjót viðbrögð varðandi flóðlýsingu á gervigrasinu.“

 

 

3.       Skipulagning Hafnardaga

Þriðjudaginn 31. maí og fimmtudaginn 2. júní verða sundlaugarpartý haldin.  Eru þessi partý í umsjón ungmennaráðs Ölfuss. 

Ákveðið var að hafa ekki fyrirfram ákveðna dagskrá á fimmtudeginum, þegar sundlaugarpartýið er fyrir 14 ára og eldri. Skipulagði ráðið þó dagskrá fyrir sundlaugarpartýið sem verður á þriðjudeginum fyrir 10-13 ára. 

 

4.       Grein í Bæjarlíf um starfsemi ungmennaráðs veturinn 2010-2011

Samþykkt samhljóða að fela Baldri Rafni að rita grein í Bæjarlíf um starfsemi ungmennaráðs veturinn 2010-2011

 

5.       Annað:

Valur Rafn  þakkaði fulltrúum ungmennaráðs fyrir veturinn en þetta var seinasti fundur ráðsins fyrir sumarfrí.  Einnig þakkaði hann ungmennaráð fyrir aðstoð við MPA ritgerð sem hann ritaði nú í vetur við Háskóla Íslands en var hún meðal annars um ungmennaráð Ölfuss.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20:30.

 

 

 

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica