Nefndir og ráð
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.
Fulltrúar í bæjarráð og kjörstjórn eru kosnir til eins árs. Í aðrar nefndir er kosið til fjögurra ára.

