Starfsmannamál
Vinnuveitendahlutverk sveitarstjórna.
Sem heild eru sveitarfélög á Íslandi einn stærsti vinnuveitandi landsins. Þau eru líka oftast stærstu vinnuveitendur í hverju sveitarfélagi. Starfsmenn sveitarfélagsins Ölfuss eru í dag 137. Starfsmönnum sveitarfélagsins hefur farið stöðugt fjölgandi og er það m.a. vegna verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga þar sem verið er að færa verkefni frá ríkinu til sveitarfélaganna, auk þess fjölgar starfsmönnum eftir því sem sveitarfélagið vex og þjónusta eykst. Um 65% af skatttekjum sveitarfélagsins fara í launakostnað og á því sést að eitt meginhlutverk sveitarstjórnarinnar er vinnuveitandahlutverkið.
Bæjarstjórn ber ábyrgð á mótun þeirrar starfsmannastefnu sem gilda á hjá sveitarfélaginu og þeim kjaraþáttum sem starfsmönnum sveitarfélagsins eru boðnir.
Hjá okkur í Sveitarfélaginu Ölfusi hefur verið innleidd fjölskylduvæn starfsmannastefna. Markmiðið með fjölskylduvænni starfsmannastefnu er að hún skili okkur hæfari og ánægðari starfsmönnum. Auk þess tekur starfsmannastefnan á öllum þáttum er snúa að sambandi starfsmanna sveitarfélagsins og stjórnenda þess. Mannauður sveitarfélagsins er sá þekkingarauður sem býr í starfsmönnum þess, menntun þeirra, færni og viðhorfum.
Starfsmenn sveitarfélagsins mynda þann mannauð sem gæði og framkvæmd allra þátta hverrar skipulagsheildar sveitarfélagsins byggist á. Bæjarstjórn ber sem vinnuveitanda að viðhalda og efla mannauðinn eins og kostur er. Það gerir bæjarstjórn með ýmsu móti, s.s. með því að skapa aðstæður fyrir starfsánægju, starfsþróun, símenntun og margt fleira sem skilgreint er nánar í starfsmannastefnunni.
Kjarasamningar
Sveitarfélagið Ölfus hefur gefið launanefnd sveitarfélaga umboð til að annast alla kjarasamninga fyrir sína hönd.
Auglýsing og ráðningar
Öll störf sem losna hjá sveitarfélaginu eru auglýst m.a. í bæjarblöðum og á vef sveitarfélagsins og með því er framgangur jafnhæfra starfsmanna tryggður. Lágmarksumsóknarfrestur er 2 vikur.
Ávallt skal lögð áhersla á að ráða til starfa hæfustu starfsmennina sem völ er á. Meta skal menntun, reynslu, færni og hæfni umsækjenda. Fylgja skal jafnréttisstefnu sveitarfélagsins við allar ráðningar. Bæjarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og bæjarráð ræður aðra fasta starfsmenn skv. samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Ölfuss.
Veikindi og slys
Starfsmenn eiga rétt á greiðslu launa í veikindum eftir því hversu langan þjónustualdur viðkomandi hefur. Rétturinn er venjulega talinn í almanaksdögum en ekki vinnudögum. Réttindi til launa í veikinda- og slysatilfellum er samkvæmt kjarasamningi.
Vinnutími og hvíldartími
Vinnuvika starfsmanns í fullu starfi er 40 stundir. Dagvinna eða vaktavinna eru algengasta skipulag vinnutíma. Tímabil dagvinnu er tilgreint í kjarasamningi. Vaktavinna er unnin á skipulögðum vöktum. Forstöðumaður getur sett bakvaktir til viðbótar venjulegum vinnutíma. Með bakvakt er átt við að starfsmaður sé ekki við störf en er reiðubúinn að sinna útkalli ef þarf.
Í kjarasamningum er kveðið á um lágmarkshvíld, 11 stundir daglega og vikulegan hvíldardag. Í kjarasamningum er einnig kveðið á um undantekningar frá þessum lágmarksreglum. Hægt er að stytta samfellda lágmarkshvíld niður í 8 stundir.
Orlof
Allir starfsmenn eiga rétt á orlofi og orlofslaunum samkvæmt lögum nr. 30/1987 um orlof. Orlof skal vera tveir dagar fyrir hvern unnin mánuð á síðasta orlofsári að lágmarki eða samkvæmt kjarsamningi veiti hann meiri réttindi. Orlof skal veitt í einu lagi á orlofstímabilinu frá 2. maí til 15. september. Heimilt er að hafa skemmra orlof á orlofstímabilinu þó að lágmarki 14 daga, ef sérstakar rekstrarástæður gera það brýnt.
Ferðir og gisting
Sveitarfélagið greiðir samkvæmt reikningi fyrir fargjöld á ferðalögum innanlands sem úrskurðast af forstöðumanni viðkomandi deildar enda fylgi fullnægjandi frumgögn. Sé hluti vinnudags unnin svo langt frá föstum vinnustað að starfsmaður þurfi að kaupa sér fæði utan heimilis eða fasts vinnustaðar gildir sama regla.
Sveitarfélagið greiðir fyrir akstur samkvæmt akstursbók staðfestri af forstöðumanni viðkomandi deildar
Starfslok
Æskilegt er að þegar starfsmenn eldast eigi þeir kost á því að færa sig í minna krefjandi störf og minnka við sig starfshlutfall. Starfsmanni skal veita lausn frá starfi sínu ekki síðar en í lok þess mánaðar sem hann verður 70 ára. Kennurum er þó heimilt að halda ráðningu sinni til loka þess skólaárs sem þeir verða 70 ára. Forstöðumenn stofnana skulu láta af því starfi við 65 ára aldur en þeim skal tryggt áframhaldandi starf og gilda um þá sömu reglur um aldurshámark og hjá öðrum starfsmönnum.
Starfsmönnum sem láta af störfum sökum aldurs og/eða veikinda skal boðið upp á viðtal við starfsmann félagsþjónustu sem kynnir og fer yfir réttindi viðkomandi starfsmanns er tengjast starfslokum. Einnig skal starfsmanninum veitt aðstoð sveitarfélagsins við að sækja réttindi sín óski hann þess.
Fæðingarorlof og foreldraorlof
Starfsmaður skal tilkynna vinnuveitanda (yfirmanni) sínum með átta vikna fyrirvara um fyrirhugaða tilhögun fæðingarorlofs.
Starfsmenn eiga rétt til fæðingar- og foreldraorlofs samkvæmt lögum nr. 95/2000 og ákvæðum kjarasamnings. Foreldrar eiga bæði rétt til þriggja mánaða fæðingarorlofs hvort og í viðbót sameiginlega 3 mánuði. Samtals eiga foreldrar því rétt á 9 mánaða fæðingarorlofi vegna hvers barns.
Foreldrar eiga rétt til foreldraorlofs sem er réttur hvers foreldra til 13 vikna launalauss leyfis til að vera samvistum við barn sitt. Réttur til foreldraorlofs fellur niður við átta ára aldur barns. Starfsmaður er launalaus í foreldraorlofi og nýtur ekki greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði.
Fræðslumál
Það er stefna Sveitarfélagsins Ölfuss að stuðla að aukinni endurmenntun starfsmanna sinna til að mæta þeim auknu kröfum sem gerðar eru til sveitarfélagsins og starfsmanna þess.
Lífeyrismál
Öllum atvinnurekendum er skylt að halda eftir af launum starfsmanna sinna til greiðslu lífeyrissjóðsiðgjalda og greiða mótframlag á móti því samkvæmt lögum hverju sinni.

