Grunnskóli Þorlákshafnar

17.3.2009

 skoli

Skólastjóri
Halldór Sigurðsson
netfang halldor@olfus.is

Aðstoðarskólastjóri
Jón H. Sigurmundsson
netfang: jon@olfus.is

Heimasíða skólans

Sími skiptiborð: 480-3850

 

Í grunnskólanum eru nú um 250 nemendur í 1. - 10. bekk

Stefna skólans

Kennarar setja sér sameiginleg markmið sem er framtíðarsýn skólans. Leitast skal við, eins og hægt er, að samræma leiðir í samskiptum en góð samskipti eru undirstaða vellíðunar á vinnustað.

Stefna skólans er:

- að stuðla að vellíðan allra í skólanum

- að efla samskipti nemenda og starfsfólks innbyrðis svo og samskipti skóla/heimila

- að kennsluaðferðir, námsefni og námsumhverfi miðist við þroska og getu nemenda

- að efla félags- og siðgæðisvitund

- að nemendur beri virðingu fyrir umhverfi sínu svo og taki ábyrgð á eigin gjörðum

- að nemendur temji sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð

Skólinn er vinnustaður og býr ungt fólk undir framtíð sem er í örri þróun. Það skal því haft að leiðarljósi að hlutverk skólans er að leiða samfélagið en ekki að endurspegla það.


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica