Sveitarfélagið Ölfus rekur leikskóla og grunnskóla í Þorlákshöfn. Þar eru einnig ný og glæsileg íþróttamannvirki og bókasafn með bjartri og notalegri barnadeild.
Leitast er við að hafa hér á síðunni yfirlit yfir dagforeldra sem starfa í Sveitarfélaginu og eru starfandi dagforeldrar hvattar til að láta bæjarskrifstofu vita ef einhver nöfn vantar á listann.
Boðið er upp á viðveru í Frístund eftir að skóla lýkur fyrir nemendur á yngsta stigi. Sækja þarf um vist í Frístund um leið og skóli hefst að vori. Nánari upplýsingar fást HÉR.
Hægra megin á síðunni eru tenglar yfir á síður sem tengjast fjölskyldu og skóla í Ölfusi.


