Tónlistarskólar
Svæðistónleikar Tónlistarskóla Árnesinga 2007
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

6.3.2009

Tónlistarskóli Árnesinga

 

Tónlistarskóli Árnesinga var stofnaður árið 1955 að frumkvæði sr. Sigurðar Pálssonar fyrrum vígslubiskups og Rotaryklúbbs Selfoss. Kosið var í undirbúningsnefnd sem hóf í kjölfarið vinnu við stofnun tónlistarskóla. Guðmundur Gilsson síðar tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins, var að ljúka tónlistarnámi í Þýskalandi og féllst á að taka að sér starf organista við Selfosskikju og skólastjórn tónlistarskólans. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar.  Fjótlega fór nemendum að fjölga og áður en langt um leið var orðin húsnæðisekla. Nemendur urðu strax um 50 talsins en árið 1970 fjölgaði þeim um 60. Voru þá góð ráð dýr því allar rekstraráætlanir gengu úr skoðum. Allt leystist þetta þó farsællega fyrir tilstilli framsýnna manna.

Mikið og gott starf hefur verið unnið af þeim sem hafa helgað krafta sína skólanum. Í dag eru það öll sveitarfélög Árnessýslu sem standa að rekstri skólans.  Skólastjóri er Róbert A. Darling en aðstoðarskólastjóri er Helga Sighvatsdóttir. Deildarstjórar eru Jóhann Stefánsson, Elín Gunnlaugsdóttir, María Weiss og Miklós Dalmay.

Það má með sanni segja að Tónlistarskóli Árnesinga sé stór og umsvifamikill. Kennt er á mörgum stöðum víðsvegar um sýsluna, öllum kaupstöðum, kauptúnum og uppsveitum. Fjöldi nemenda er um 500. Um 30 kennarar starfa að jafnaði við skólann.

Starfsemi Tónlistarskóla Árnesinga hefur verið blómleg í gegnum tíðina. Fjölmargir tónleikar hafa verið haldnir, bæði smáir tónfundir í einstaka deildum og svo stórir sameiginlegir tónleikar með öllum deildum. Samskti hafa verið góð við aðra tónlistarskóla, bæði hér heima og á öðrum Norðurlöndum. Fór meðal annars strengjasveit skólans til Svíþjóðar til að endurgjalda heimsókn sænskrar strengjasveitar.

Margir valinkunnir tónlistarmenn hafa ljáð skólanum krafta sína á liðnum árum og nægir þar að nefna menn eins og Jónas Ingimundarson og Glúm Gylfason að öllum öðrum ólöstuðum. Ekki er útlit fyrir að áhugi fólks fyrir tónlistarnámi fari dvínandi á næstu árum, heldur þvert á móti og það er verðugt verkefni að styrkja og efla tónmennt í landinu til sjávar og sveita.

Allar nánari upplýsingar fást á vef skólans www.tonar.is


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: