Afreks- og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss
Afreks- og styrktarsjóður
Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta - og æskulýðsnefnd
Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss
Íþrótta – og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.
Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í íþróttafélögum innan Sveitarfélagsins Ölfuss fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþróttakeppnum erlendis. Einnig að veita afreksmönnum á sviði íþrótta viðurkenningu og stuðning til þjálfunar og þátttöku í mikilvægum keppnum.
Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. apríl næstkomandi, merkt:
AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi, í sima 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is
Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta – og æskulýðsnefnd

