Fréttir
Þverflaututríóið ásamt kennara sínum
Mynd 1 af 2
1 2

Þverflaututríó úr Þorlákshöfn í lokakeppni Nótunnar

22.3.2012

Síðastliðin ár hafa tónlistarskólar á Íslandi efnt til uppskeruhátíðar undir heitinu "Nótan". Af því tilefni er efnt til tónleika um allt land þar sem nemendur keppa um að taka þátt í næstu tónleikum og að lokum á lokatónleikum Nótunnar sem að þessu sinni var haldin í Hörpunni í Reykjavík um síðastliðna helgi.  Á þeim tónleikum áttu Ölfusingar sína flytjendur á tónleikunum, en það voru þær Ólöf Sigurðardóttir, Kristrún Gestsdóttir og Inga Þórs Ingvadóttir sem spiluðu saman á þverflautu og mynduðu sérlega flottt þverflaututríó. Stúlkurnar voru glæsilegar á sviðinu og spiluðu af mikilli leikni og innlifun sem hreif tónleikagesti með sér.

Fyrstu tónleikar þeirra voru hér á Suðurlandi, næst spiluðu þær í Salnum í Kópavogi og að lokum á þessum lokatónleikum Nótunnar í Hörpunni. Við megum vera mikið stolt af þessum stúlkum og hefur Pamela, kennari þeirra unnið vel með þeim.

Meðfylgjandi myndir eru fengnar frá Sigþrúði Harðardóttur



Tungumál



Landsbankinn stendur fyrir skemmtun

Útlit síðu: