Ný útiljósmyndasýning við Selvogsbraut
Í morgun var formlega opnuð ný útiljósmyndasýning við Selvogsbraut á móti versluninni Kjarval. Þetta er í fimmta skipti sem opnuð er útisýning í sýningarkössum sem starfsmenn í SB skiltagerð smíðuðu fyrir menningarnefnd árið 2006. Sýningarkassarnir hafa staðið af sér það vonskuveður sem stundum geysar í Þorlákshöfn og engar myndir hafa skemmst á þessu tímabili. Myndirnar sem nú eru til sýnis eru að miklu leiti úr ljósmyndasafni Ölfuss og myndefnið félagasamtök í Þorlákshöfn. Flestar myndanna eru teknar á tímabilinu 1960 til 1987. Félögin sem hér um ræðir eru Leikfélag Þorlákshafnar, Ungmennafélagið Þór, Lúðrasveit Þorlákshafnar, Hestamannafélagið Háfeti, Söngfélag Þorlákshafnar og Kvenfélag Þorlákshafnar.
Barbara Guðnadóttir

