Fréttir
Samkomulag um leikskólapláss
Samkomulag um leikskólapláss
Sveitarfélagið Ölfuss og Hveragerðisbær hafa undirritað samkomulag um aukningu á leikskólaplássum fyrir Ölfus á leikskólum í Hveragerði.
Fyrir hendi var samningur fyrir sex börn og nú bætast við pláss fyrir önnur sex börn. Við þetta styttast biðlistar fyrir leikskólabörn í sveitarfélaginu og er biðlisti nú óverulegur.


