Frístund

9.2.2009

Barcelona 2008 088Frístundaheimilið í Þorlákshöfn

Ýmsar upplýsingar til foreldra/forráðamanna

Starfsfólk:

Olga Sigr. Zoega Jóhannsdóttir 
Jóhanna G. Arngrímsdóttir
Sigríður Ósk Jensdóttir

Símanúmer frístundaheimilis: 699 6090


Hlutverk frístundaheimilis:

Frístundaheimilið býður upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6 – 9 ára barna lýkur. Starfið einkennist jafnt af skipulögðum sem og frjálsum leik. Innra starf frístundaheimilisins, svo sem dagskrá, viðfangsefni og samstarf við utanaðkomandi aðila fer eftir aðstæðum hverju sinni.

Þjónusta við börn með sérþarfir er skipulögð í frístundaheimilinu í samvinnu við foreldra, skóla og fagaðila er tengjast börnunum.

Sé þess óskað munu starfsmenn frístundaheimilis sjá um að koma börnum í frjálst starf utan skóla (s.s. íþróttaæfingar, tónlistarskóla o.fl.)

Tilkynna þarf starfsmönnum þetta sérstaklega og skrá á umsóknareyðublað.fristund 010

 

Opnunartími:

Frístundaheimilið er opið eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 17:00 alla virka daga. Sami opnunartími er á foreldradögum og starfsdögum.  Í  jóla – og páskafríum er opnunartími frá kl: 08:00 til kl:12:00. Frístundaheimilið er lokað í vetrarfríum grunnskólans.

Innritun - uppsagnir:

Foreldrar/forráðamenn innrita börn sín í upphafi skólaannar. Hægt er að innrita á heimilið oftar enda greiði viðkomandi fullt - eða hálft gjald fyrir hvern byrjaðan mánuð, eftir þeim reglum sem gilda um vistunarkostnað.

Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðamót.

Allar breytingar á umsóknareyðublaði skal tilkynna til starfsmanna.

Húsnæði:

Frístundaheimilið verður staðsett í Grunnskólanum í Þorlákshöfn og kemur til með að hafa eina svokallaða heimastöð, svokallað "hjarta" frístundaheimilisins. Einnig verður leitast við, í samráði við skólastjórnendur, að samnýta húsnæði sem ekki er í notkun hverju sinni, s.s. sérgreinastofur, hátíðarsal o.s.frv.

Einnig verða íþróttahús, sundlaug og félagsmiðstöð notuð undir starfsemina.

 

Gjaldskrá:

- Boðið er upp á tvo vistunarmöguleika, hálfa vistun og heila vistun.

- Gjaldskráin miðast við að valinn sé annar kosturinn.

- Vistun fyrir heilan dag er frá lok skóladags til kl. 17:10. Gjald fyrir heilsdagsvistun er kr. 9.015,- á mánuði. Full vistun er u.þ.b. 20 klukkustundir á viku.

- Hálfsdagsvistun er sveigjanleg. Þ.e. miðað við allt að helming af opnunartíma heimilisins. Þetta getur átt við ef fólk vill fá vistun ákveðna daga í viku. Gjald fyrir hálfsdagsvistun er kr. 4.505,- á mánuði.

- Veittur er systkinaafsláttur. Hann verður 25% með öðru barni og 50% með þriðja barni. 

Systkinaafsláttur gildir eingöngu ef systkini eru í fullri vistun.

 

Fæði:

Boðið verður upp á fæði í skólanum í hádeginu og greiða börnin fyrir það sérstaklega. Einnig er hægt að hafa með sér nesti.

Hádegismatur á vegum skólans kostar kr. 265,- pr/máltíð.

Síðdegishressing kostar kr. 105,- pr/hressing.

Starfsmenn frístundaheimilis munu hafa umsjón með hádegismat og síðdegishressingu.

Klæðnaður:

Börn verða að vera klædd eftir veðri, þ.e. í regnfötum þegar það á við o.s.frv. Gera má ráð fyrir að börn fari yfirleitt út að leika sér, bæði frjálst eða samkvæmt skipulagi.

 

Sund/íþróttir

Frístundaheimilið mun hafa bæði sundlaug og íþróttasal til afnota.   Á þriðjudögum  þurfa börnin að hafa með sér íþróttaföt.

Skráning í frístundaheimili


Keppt í hlaupi á Unglingalandsmóti 2008

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica