Unglingar

Í Þorlákshöfn er starfandi félagsmiðstöð fyrir unglinga í 6. - 10. bekk. Þar er helsta starfsemin: opið hús, bíóferðir, skautaferðir, sleep over, LAN helgi, PS2 mót, fótboltamót, billjardmót, þythokkímót, klúbbastarf, sundlaugarpartý, þemadiskó, dragkeppni, söngvakeppi, singstar og fleira.

Í Grunnskólanum er félagslífið með hefðbundnum hætti. Diskótek eru haldin jafnt og þétt allan veturinn og eru í umsjón 7. og 10. bekkjar. Bekkjarkvöld eru í höndum hvers bekks og umsjónarkennara hans. Mikil vinna er lögð í jólakvöldvökur og árshátíðir. Á hverju ári er sett um leikverk með nemendum skólans. Ýmsar aðrar uppákomur eru í umsjón skólans.

Mikið og öflugt íþróttastarf er á vegum hinna ýmsu íþróttafélaga á staðnum. Frekari
upplýsingar um æfingar og íþróttir fást í Íþróttahúsinu.
Þá er starfandi öflug unglingadeild við Björgunarsveitina Mannbjörg.

