Hátíðir
hafnardagar9
Mynd 1 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

6.2.2009

Hafnardagar

 

Hafnardagar er bæjarhátíð Þorlákshafnarbúa, haldin um Sjómannadagshelgina. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar skipuleggur dagskrána og hefur veg og vanda að framkvæmd hennar ásamt menningarfulltrúa Ölfuss og menningarnefnd.

Á Hafnardögum er margt gert til skemmtunar m.a. dorgveiðikeppni, götu- og handverksmarkaður, tónleikar, skrúðgöngur og margt fleira.  Boðið er upp á gönguferðir um bæinn með leiðsögn, vinnustofur eru opnar og ennfremur margvíslegar sýningar.

Dagskrá hátíðarinnar er hægt að skoða á vefsíðunni www.hafnardagar.is

Anna Greta Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri afmælishátíðarinnar. Hægt er að hafa samband við hana um netpóstinn anna@bardusa.is eða í síma 695 2506.

Barbara Guðnadóttir, menningarfulltrúi vinnur að undirbúningi Hafnardaga með Önnu Grétu. Hægt er að ná í hana á bókasafninu í síma 480 3830 eða í síma 863 6390, einnig um netfangið barbara@olfus.is

Við þökkum fyrir allar ábendingar, aðstoð og hverskyns framlag.


Skrúðganga úr græna hverfinu á Hafnardögum

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica