Menningarsvið

Í Sveitarfélagi Ölfuss fer menningarnefnd með málefni á sviði menningar-, viðburða- og ferðamála.

Menningarnefnd fyrir kjörtímabilið 2011-2014 skipa: Magnþóra Kristjánsdóttir, formaður, Valgerður Guðmundsdóttir, Jenný Dagbjört Erlingsdóttir, Brynjólfur Hjörleifsson og Róbert Dan Bergmundsson.

Menningarfulltrúi Ölfuss, Barbara Guðnadóttir er starfsmaður nefndarinnar.
Skrifstofa menningarfulltrúa er á Bæjarbókasafni Ölfuss. S: 480 3830 eða 863 6390.
Netfang: barbara@olfus.is

Menningarstefna Ölfuss

Ferðamálastefna Ölfuss

                                        Bæjarbókasafn Ölfuss

radhusHafnarbergi 1
815 Þorlákshöfn

sími 480-3830
Netfang: bokasafn@bokasafn.is

Veffang: www.olfus.is/bokasafn

Afgreiðslutími:

mánudaga – miðvikudaga kl. 11:00 – 18:00

fimmtudaga kl. 14:00 – 20:00

föstudaga kl. 11:00 – 17:00

Frá 1. júní - 31. ágúst er einnig opið á laugardögum 13-16.

Á Bæjarbókasafni Ölfuss er góð aðstaða til sýninga í Gallerí undir stiganum. Reynt er að skipta út sýningum mánaðarlega og geta þeir sem hafa áhuga á að halda sýningu í Galleríinu, hafi samband við menningarfulltrúa.

Lista-og menningarsjóður

Hægt er að sækja um styrk úr Lista- og menningarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.

Auglýst er eftir umsóknum á haustmánuðum.

Reglur um Lista- og menningarsjóð

Umsóknareyðublöð.

tunglfiskurTunglfiskur á sýningu í Þorlákshöfn

Uppstoppaðir fiskar og önnur sjávardýr eru á sýningu í opnu rými á efri hæð Ráðhúss Ölfuss.

Tónar við hafið

Menningarnefnd stendur fyrir tónleikaröð yfir vetrarmánuðina.

Tónleikar eru alla jafna einu sinni í mánuði og þá yfirleitt í miðri viku. Sumarið 2008 verður tónlistarfólki í fyrsta skipti boðið að sækja um að halda tónleika. Reynt er að hafa efnisskrána fjölbreytta svo tónleikaröðin höfði til sem flestra. Tónleikarnir eru yfirleitt í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, Ráðhúskaffi eða í Þorlákskirkju.


Lúðrasveit Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: