Menningarnefnd Ölfuss stendur fyrir tónleikaröðinni Tónar við hafið yfir vetrarmánuðina. Tónleikar eru alla jafna einu sinni í mánuði frá september fram í maí. Reynt er að hafa efnisskrána fjölbreytta svo tónleikarnir höfði til sem flestra. Fjölmargir hafa lagt menningarnefndinni lið við að gera Tóna við hafið að föstum lið í vetrardagskrá sunnlendinga og eru öllum sem að komu færðar þakkir. Sérstaklega ber þó að þakka Menningarráði Suðurlands sem hefur stutt vel við Tóna við hafið síðustu árin.
Dagskrá Tóna við hafið veturinn 2011-2012
12. apríl kl. 21:00
Djasstríó Sunnu Gunnlaugs verður með tónleika í Ráðhúskaffi, Ráðhúsi Ölfuss
Miðaverð 1.500 krónur
18. mars kl. 16:00
Gunnar Kvaran, sellóleikari og Elísabet Waage, hörpuleikari halda tónleika í Þorlákskirkju
Miðaverð 1.500 krónur
22. febrúar kl. 20:30 í Ráðhúskaffi
Hljómsveitin 1860
Á tónleikunum kemur fram hljómsveitin 1860 en hún hefur verið nokkuð áberandi síðustu mánuði og gaf meðal annars út plötuna Sagan fyrir stuttu sem hefur fengið mjög góðar viðtökur. Lögin “Snæfellsnes” og “Orðsending að austan” hafa heyrst mikið í útvarpinu og náði “Snæfellsnes” meðal annars öðru sæti á Vinsældarlista Rásar 2 síðastliðið sumar. Félagarnir í 1860 spila alþýðupopp og stefna af miklum krafti inn í árið 2012 með því að gefa út nýja plötu og halda fjölda tónleika.
Miðaverð 1.500 krónur
28. desember kl. 20:00 í Þorlákskirkju
Jónas Ingimundarson, píanóleikari, blásarakvartett og Auður Gunnarsdóttir söngkona flytja kvintetta eftir Mozart og Beethoven og sönglög eftir Schubert.
Aðgangur 1.500 krónur (kaffi og piparkökur í hléinu)
17. nóvember kl. 20:00
Ragnheiður Gröndal og jassbandið Ylfingarnir flytja gamaldags léttleikandi swingtónlist í and Billie Holliday, Lester Young og Loui Armstrong.
Meira um tónleikana
Tónleikar 2011
1. Júní
Músíkmaraþon
17. Maí kl. 14:00
Lúðrasveit og kór Grunnskóla Þorlákshafnar fluttu söngleikinn Kardimommubærinn
1. apríl kl. 21:00
Ragnheiður Gröndal mætir ásamt hljómsveit og flytur efni af nýjum hljómdiski auk þess að flytja eldri og þekktari tónlist.
4. febrúar kl. 21:00
Jónas Sigurðsson ásamt hljómsveit flytur ný og gömul lög á tónleikum í Versölum, Ráðhúsinu. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00. Aðgangseyrir 1.500 krónur.
17. mars kl. 20:00
Þjóðlagasveitin Narodna Musika flytur þjóðlagatónlist frá Grikklandi, Búlgaríu, Makedóníu og Tyrklandi. Eldfjörug tónlist sem fólk kannast við úr kvikmyndum og leikþáttum og flutt hefur verið við ýmsar skemmtanir í gegnum aldirnar.


