Samhliða auglýstri tillögu að endurskoðun Aðalskipulags Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022, eru auglýst drög að deiliskipulagi fyrir ylræktarver innan iðnaðarreits, vestan Hellisheiðavirkjunar.
Kynnt eru drög að deiliskipulagi ylræktarvers til framleiðslu á tómötum til útflutnings. Staðsetning ylræktarversins er í nágrenni Hellisheiðavirkjunar og nýtir heitt og kalt vatn frá virkjuninni ásamt rafmagni. Deiliskipulagið nær yfir um 24 ha reit innan 112 ha reits sem fyrirhugaður er fyrir starfsemi sem nýtir afurðir frá Hellisheiðavirkjun og mengar ekki loft eða grunnvatn. Nýttar verða tæknilegar útfærslur til að draga úr áhrifum af lýsingu og öðrum umhverfisþáttum í rekstri ylræktarversins.
Drög að deiliskipulagi er sett fram með greinargerð, umhverfislýsingu og uppdráttum.
Tillögurnar, fyrir endurskoðað aðalskipulag Ölfuss 2010-2022 og drög að deiliskipulagi fyrir ylræktarver ásamt greinargerðum,verða til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, á skrifstofutíma, frá og með mánudeginum 23. janúar 2012 til og með 7. mars 2012. Einnig munu tillögurnar verða aðgengilegar á heimasíðu bæjarins www.olfus.is og einnig hjá Skipulagsstofnun á www.skipulagsstofnun.is . Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með 7. mars 2012. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa Ölfuss á bæjarskrifstofur í Ráðhúsi, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna, teljast henni samþykkir.
Smellið á tenglana hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar:

