Tilkynningar
Nú er Söngfélag Þorlákshafnar að byrja vorönnina. Það er margt skemmtilegt framundan hjá kórnum og þess vegna langar okkur að bæta við í allar raddir. Við hlökkum til að sjá sem flesta á næstu æfingu sem er sú fyrsta á þessari önn - þriðjudaginn 24. janúar kl. 20, í Grunnskólanum í Þorlákshöfn.
Stjórnin.

