Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta - og æskulýðsfulltrúi
Íþróttamiðstöðin Þorlákshöfn
Starfsmenn óskast !
Íþróttamiðstöðin í Þorlákshöfn óskar eftir starfsmanni í 100% stöðu
(karlmaður vegna baðvörslu í karlaklefa) og starfsmanni í 50% stöðu.
Bæði störfin eru unnin í vaktavinnu sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við íþrótta, líkamsræktar- og sundlaugarmannvirki, tjaldstæði, þrif, afgreiðslu og umsjón með tækjabúnaði í tækjarýmum.
Hæfniskröfur:
Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilning á íþrótta – og æskulýðsstarfi. Um framtíðarstörf er að ræða.
Laun samkv. launatöflu FOSS.
Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnispróf sundstaða.
° Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni.
° Umsóknarfrestur er til 27. júlí.
° Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna.
Nánari upplýsingar gefur:
Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi í síma: 480 – 3890 og 480-3891.

