Sveitarfélagið Ölfus auglýsir laust til umsóknar starf húsvarðar í Ráðhúskaffi og Versölum. Leitað er að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi með ríka ábyrgðartilfinningu, auk þess sem viðkomandi þarf að hafa góða umgengni og snyrtimennsku að leiðarljósi í störfum sínum. Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði. Um er að ræða 50% stöðugildi til reynslu í eitt ár. Sveitarfélagið vill hvetja konur jafnt sem karla til að sækja um stöðuna. Ráðgert er að ráða í stöðuna sem allra fyrst.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Rík ábyrgðartilfinning og áreiðanleiki
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Snyrtimennska
• Skipulagshæfileikar og festa
Nánari upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri eða bæjarritari.
Áhugasamir um starfið eru vinsamlegast beðnir um að skila inn skriflegri umsókn á bæjarskrifstofu, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn eða í tölvupósti til bæjarstjóra, olafur@olfus.is eigi síðar en 24. september næstkomandi.

