Tilkynningar

28.5.2010

           

                                      

Maí fréttablað

 

Tónlistarskólinn

Í apríl féll niður heimsóknin hjá tónlistarskólanum. Í maí er svo áætluð síðasta heimsókn frá tónlistarskólanum í vetur. Þetta samstarf hefst svo vonandi aftur næsta haust.

 

Heimsókn frá dagmæðrum

Tvær dagmæður þær Halldóra og Hafdís  hafa komið í heimsókn með  börnin sem eru hjá þeim í vistun hingað í söngstund og gengur það mjög vel. Leikskólabörnin hafa tekið vel á móti börnunum sem eiga  jafnvel systkini, mömmu og ömmur á leikskólanum.

 

Samstarf við félagsstarf eldriborgara

Í apríl komu á Tröllaheima Baldur Loftsson með harmonikkuna sína og spilaði  og Halla Kjartansdóttir sem las og sagði sögur bæði úr bók og úr riti sem hún skrifaði um sveitina sína. Einnig  sagði  hún frá því hvernig börnin léku sér þegar hún var lítil. Þá sagði hún frá því að þegar  það var snjór skáru börnin niður gólfdúk  og renndu sér á honum á snjónum. Sama dag fór hópur af Álfaheimum  á 9-una og hitti Hilmar sem sagði þeim skemmtilegar sögur og sýndi þeim ýmislegt skemmtilegt dót.

Flutningur á lögum

Hestavísur og Vaskur og félagar lögin sem börnin hafa verið að æfa í samstarfi við tónlistarskólann verða flutt í Versölum í Ráðhúsinu  14. maí kl 10.00.  Öllum  þeim sem vilja koma og hlusta á þennan flutning  er velkomið að koma. Hópur úr tónlistarskólanum spilar undir. Þetta er mjög spennandi samstarfsverkefni.  Allir velkomnir.

Vorhátíð

Vorhátíð foreldrafélagsins verður haldin 15.maí  milli kl 11.00-13.00 og verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.  Boðið verður upp m.a. andlitsmálun,  Prumpulína mætir, grillaðar pylsur verða fyrir gesti, Rúnar Gunnarsson með gítar og ætlar að syngja og spila, brunabíll verður til sýnis,  ýmis dýr verða og fl. Gaman væri að sjá sem flesta.

 

Útskrift hjá 6 ára börnunum

Útskriftarhátíð var 29. apríl  á Hulduheimum í boði foreldrafélagsins. Farið var á Svarta Sauðinn og borðuð pizza , börnin fengu afhentan penna með merki leikskólans, hatt og möppu með verkum sínum og myndum frá leikskólagöngu þeirra.  Þetta  er alltaf mjög hátíðleg stund. Í sumar eru það 18 börn sem hætta í  leikskólanum.

 

Samstarf við vinnuskólann

Samstarfið við vinnuskólann verður með svipuðum hætti og undanfarin ár en þá hafa komið nokkrir unglingar í vinnu í leikskólann í stað hefðbundnar garðvinnu. Þetta samstarf hefur gengið vel og verður vonandi hægt að birta nöfnin á unglingunum í júnífréttablaðinu en þau byrja líklega að vinna í annarri viku af júní.

Sími sem fannst

Í síðustu viku fannst grár Panasonic sími á bílastæðinu, síminn er ekki með símakorti en batterí ef einhver hefur tapað síma getur hann komið og vitjað hans í Bergheimum.

Vikan 3.-7. maí

3. maí  tónlistarskólinn kemur í síðustu heimsóknina í vetur.

7. maí er komið að bleikum litadegi þá væri gaman ef allir mættu bæði börn og kennarar í einhverju bleiku eða með eitthvað bleikt á sér.

7. maí er söngstund þar sem allar deildar hittast inn í salnum og syngja saman.

 

Vikan 10.-15. maí

11. maí koma  gestir frá félagsstarfi eldri borgara á Álfa- og  Dvergaheima og lesa/ segja sögur eða spila á hljóðfæri.  Þennan sama dag fer hópur barna frá Tröllaheimum  í heimsókn á 9-una.

12. maí er Starfsmannadagur hjá Sveitafélaginu Ölfuss og leikskóli lokar kl 14.45 þann dag

13. maí er Uppstigningardagur og er þá leikskólinn lokaður.

14. maí tónleikar í Ráðhúsinu kl 10. hjá leikskólabörnunum og hóp úr tónlistarskólanum.

15. maí vorhátíð foreldrafélagsins milli kl 11-13.

 Vikan 17.-21.maí

 21. maí er söngstund þar sem allar deildir hittast inn í salnum og syngja saman.

 Vikan 24.-28. maí

24. maí Annar í hvítasunnu þá er leikskólinn lokaður.

28. maí er uppákoma í söngstund þá sér ein deild um söngstundina og er með uppákomu.

                                                                                                        Með sumarkveðju

Dagný aðstoðarleikskólastjóri

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica