Sveitarfélagið Ölfus hefur lagt inn til Vinnumálastofnunar yfirlit yfir átaksverkefni fyrir námsmenn án bótaréttar og atvinnuleitendur. Vinnumálastofnun hefur samþykkt og auglýst á heimasíðu sinni, http://www.vinnumalastofnu.is/, eftirfarandi fimm verkefni hjá sveitarfélaginu:
ÖLF01 Hreinsun umhverfisins og strandlengjunnar
ÖLF02 Uppgræðsla kampsins, sandrofa og viðhald þegar gróina svæða m.a. með gróðursetningu trjáa
ÖLF03 Uppgræðsla í kringum golfvöll
ÖLF04 Upplýsingamiðlun, skönnun og skráning
ÖLF05 Vinna við íþróttavelli og tjaldstæði
Athygli er vakin á að umsóknargáttin er í gegnum heimasíðu Vinnumálastofnunar. Umsóknarfrestur er til 24.05.2010. Störfin standa þeim til boða sem ná 18 ára aldri á árinu.

