Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir
Tómstundafulltrúa
Félagsstarfs eldriborgara í 9-unni
(Egilsbraut 9 Þorlákshöfn)
Um er að ræða 50% stöðugildi og þarf viðkomandi starfsmaður að geta hafið störf 15. júlí nk.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera fjölhæfur og hafa góða samskiptahæfni, geta miðlað þekkingu og nýtt þann vettvang sem til staðar er og efla áhuga þátttakenda.
Tómstundafulltrúi hefur umsjón með öllu tómstundastarfi, fjölbreytni og þróun þess, auk annarra verkefna á Egilsbraut 9.
Að Egilsbraut 9 er glæsileg aðstaða og góð tæki til fjölbreyttrar tómstundaiðju.
Bæði karlar og konur eru hvött til að sækja um starfið. Allar frekari upplýsingar veitir Sigrún Theódórsdóttir forstöðukona Egilsbrautar 9 á milli kl. 09:00 – 16:00 á Egilsbraut 9 eða í síma 483-3614.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofu eða á heimasíðu sveitarfélagsins http://www.olfus.is/
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu Ölfuss Hafnarbergi 1 fyrir 15. júní 2010. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sveitarfélagið Ölfus er framsækið sveitarfélag og leggur ríka áherslu á góðan starfsanda á vinnustað. Þá er leitast við að auka möguleika starfsfólks til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Bæjarstjóri Ölfuss

