Tilkynningar

1.6.2010

                               

Júní fréttablað

 

Tónlistarskólinn

Í maí heimsókn tónlistarskólans kom Robert Darling með nemendur sína þau Daníel Orra á althorn, Jakob Unnar á barítónhorn, Sigrún Sól á trompet, Sigrún Elfa á kornett og Birta einnig á kornett og Bergrún á klarinett. Þetta var síðasta heimsóknin í vetur og verður svo vonandi  framhald í haust  á þessum heimsóknum.

 

Sumarskipulagið

Á hverri deild er hafið sumarskipulag og hefur það sjaldan verið vandaðra en mikil áhersla er lögð á vettvangsferðir og unnið með næsta nágrenni svokallaða grenndarkennslu. Verkefni verða færð eins mikið út og veður leyfir. 

 

Samstarf við félagsstarf eldriborgara

Í maí komu á  þær Erla Markúsdóttir  á  Álfaheima  sagði sögur og á Dvergaheima  Hólmfríður A Jónsdóttir og las skemmtilega bók um litina. Sama dag fór hópur af Tröllaheimum  á 9-una og hitti Hilmar sem sagði þeim skemmtilegar sögur og sýndi þeim ýmislegt dót.

 

Gjöf frá foreldrafélaginu

Á vorhátíðinni gaf  Foreldrafélag Leikskólans Bergheima flotta gjöf en það er viðbót við numicon sem við  eigum. En fyrir þá sem ekki vita er numicon  stærðfærði kennsluefni sem notað er í Bergheimum. Þökkum við kærlega fyrir þessa góðu gjöf.

 

Heimsókn í grunnskólann

Börnin sem eru að fara á Hulduheima í sumar var boðið í mat í grunnskólanum þann 19. maí. gekk sú heimsókn mjög vel. Inga og Guðfinna matráðskonur í skólanum tóku á móti þeim en kennararnir á Tröllaheimum fylgdu þeim og voru með þeim á meðan heimsóknin var.

 

3. bekkur Grunnskólans í Þorlákshöfn heimsækir Bergheima

Nemendur úr 3 bekk ásamt kennara sínum Önnu Sólveigu Ingvadóttur heimsóttu leikskólann í þeim tilgangi að lesa fyrir leikskólanemendur. En þetta er hluti af grenndarkennslu  tókst þetta vel og er  áhugi  fyrir því að reyna að gera þetta aftur. Mikil fjölskyldutengsl komu í ljós í þessari heimsókn og áttu fleiri en færri systkini í leikskólanum, eða þá mömmu eða ömmu.

 

Ný börn

Aðlögun nýrra barna er hafin og stendur hún til haustins, mikið er um að elstu börnin hætta ekki fyrr en um sumarfrí því er ekki hægt að taka ný börn inn fyrr en eftir sumarfrí. 

 

Sólarvörn

Þegar sólin skín  er nauðsynlegt að foreldrar beri sólarvörn á börnin sín áður en þau koma í leikskólann og gott er hafa sólarvörn í leikskólatöskunni svo hægt sé að bera aftur  á börnin eftir þörfum.

 

Tilkynna frí

Mikilvægt er að tilkynna alltaf þegar börnin eru í fríi eða eru veik. Þarf þá  ekki að bíða eftir þeim ef verið er að fara í gönguferðir eða í aðrar vettvangsferðir.

 

Fundur vegna barna sem eru fædd 2005

Fundur var með foreldrum barna sem eru fædd 2005 og eru að flytjast í Hulduheima sem er staðsett í grunnskólanum.   

Skilafundur, milli skólastiga, fór fram 18. maí og skilaði deildarstjóri til væntanlegs kennara fyrstabekkjar upplýsingnum er málið varða um verðandi fyrstu bekkinga.

 

Starfsfólk að útskrifast

Svala Ósk Sævarsdóttir útskrifaðist sem leikskólaliði frá Borgarholtsskóla 21. maí sl. og óskum við henni innilega til hamingju

Helena Jóhannsdóttir mun útskrifast frá Háskólanum frá Akureyri 13 júní nk.

 

Lambaferð

Börnin fengu að heimsækja þau Garðar og Diddu í hesthúsið þeirra og skoða þar nýborin lömb og klappa honum Sokka hestinum hans Garðars.

Færum við þeim bestu þakkir fyrir það að leyfa okkur að koma. 

 

Leikskólabörn syngja

Áætlað er að börnin syngi við opnun ljósmynda sýningar við Selvogsbrautina þann 2. júní kl 10.30.

 

Hundasteinn

Hundaeigendur athugið að þrífa upp eftir hundanna ykkar við hundasteininn.

 

Hjóla- og grilldagur

Hjóla- og grilldagur verður haldin áður en leikskólinn fer í frí og verður notaður einhvern góðvirðisdagurinn í hann. Börnin mæta með hjólin sín og hjálm, í hádeginu verða grillaðar pylsur handa öllum.  Verður hann auglýstur með dags fyrirvara.

 

Sumarfrí

Sumarfrí í leikskólanum er frá miðvikudeginum 7. júlí til 11. ágúst. Þann 11. ágúst verður starfsdagur og mæta börnin ekki þann dag en á þessum starfsdegi skipuleggja kennarar vetrarstarfið. Þann 12. ágúst mæta börnin í leikskólann.

 

Vikan 1.júní-4. júní.

2. júní börnin að syngja kl 10.30 við opnun ljósmyndasýningar á Selvogsbrautinni.

4. júní er komið að appelsínugulum litadegi þá væri gaman ef allir mættu bæði börn og kennarar í einhverju appelsínugulu eða með eitthvað appelsínugult á sér.

4. júní söngstund börnin hittast öll inn í sal eða lautinni og syngja saman.                                

Vikan 7.júní -11. júní.

7. júní unglingarnir í vinnuskólanum byrja að vinna og vinna fram að sumarfríi..

8. júní hópur af Tröllaheimum að  fara á 9-una og Hulduheimar fá heimsókn frá félagsstarfi eldriborgara.

Vikan 14. júní -18. júní

17. júní þá er leikskólinn lokaður.

Vikan 21. júní -25. júní

Sumarskipulagið er á fullu alla dagana.

Vikan 28. júní -30. júní

Sumarskipulagið er á fullu alla dagana.

 

                                                                                                Með sólarkveðju

Dagný aðstoðarleikskólastjóri

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica