Tilkynningar

14.6.2010

Menningarnefnd Ölfuss býður börnum að taka þátt í listasmiðju undir yfirskriftinni „skapandi endurvinnsla“. Fyrirtæki og stofnanir leggja til efni sem þau eru hætt að nota eða ætlunin er að henda.  Börnin byrja á því að flokka efnið og raða, síðan er efniviðnum umbreytt í skapandi vinnu. Listasmiðjunni lýkur með sýningu í Gallerí undir stiganum.

Menningarráð Suðurlands styrkir listasmiðjuna en Ágústa Ragnarsdóttir er leiðbeinandi.

 Skráning fer fram á Bæjarbókasafni Ölfuss, s. 480 3830 eða um

netfangið barbara@bokasafn.is

Hvort námskeið stendur yfir í eina viku.

Námskeið fyrir börn fædd 2001 – 2003, 21. - 25. júní, kl. 9:00 - 12:00

Námskeið fyrir börn fædd 2000 - 1998, 28. júní - 2. júlí, kl. 9:00 - 12:00


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica