Golfnámskeið í júlí.
Eftirfarandi golfnámskeið verða í boði í júlí:
Stök byrjendanámskeið frá holu að teig. Námskeiðið er fjögur kvöld (13., 15., 20. og 22. júlí) frá 19:00 - 21:00. Farið verður yfir grundvallaratriði golfíþróttarinnar á einfaldan hátt og endað á 9 holu golfhring. Pláss fyrir 8 þátttakendur. Skráning í síma 899-9820 eða ingvar@olfus.is Verð 5000 kr.
Upphitun og kennsla fyrir kvennagolf á mánudögum frá 19:00 -20:00 (Skráning á staðnum, verð 1000 kr).
Hvernig á að skora völlinn. Námskeiðið er fyrir lengra komna og er fjögur kvöld (19., 21., 26. og 28.júlí ) frá 20:00 - 22:00. farið verður yfir uphafshöggin af teig og höggin frá 90 metrum og innar. Pláss fyrir 8 þátttakendur. Skráning í síma 899-9820 eða ingvar @olfus.is Verð 5000 kr.

