Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir bæjarstjóra
Verksvið bæjarstjóra er m.a.:
•framkvæmdastjórn sveitarfélagsins
•yfirumsjón með starfsemi sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana
•ábyrgð og umsjón með fjármálastjórn og áætlanagerð
•hagsmunagæsla og samskipti við stofnanir, fyrirtæki og samtök
•þátttaka í uppbyggingu samfélagsins
Lykileiginleikar bæjarstjóra eru:
•leiðtogahæfileikar og mjög góðir samskiptahæfileikar
•stefnumótandi hugsun og framsýni
•frumkvæði og metnaður í starfi
Menntunarkröfur og reynsla:
•háskólamenntun sem nýtist í starfi
•þekking, færni og reynsla í málefnum fjármála, stjórnunar og reksturs er skilyrði
•þekking, færni og reynsla í opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur
•þekking, færni og reynsla í vinnu við og í eftirfylgni stefnumótunar
•áhugi á uppbyggingu sveitarfélagsins
Sveitarfélagið Ölfus er landstórt sveitarfélag, um 750 ferkílómetrar og er vestast í Árnessýslu. Íbúar eru í kringum 2000. Þorlákshöfn er þéttbýlisstaður sveitarfélagsins með um 1600 íbúa. Nafn sitt dregur Þorlákshöfn af Þorláki helga Skálholtsbiskup (1133-1193).
Aðal atvinnugreinar eru fiskveiðar og vinnsla, verslun og þjónusta, landbúnaður og iðnaður. Sveitarfélagið býr yfir góðum tækifærum til áframhaldandi uppbyggingar. Reist hafa verið glæsileg íþrótta- og heilsuræktarmannvirki og byggt hefur verið undir mjög öflugt og líflegt menningarlíf sem markar ákveðna sérstöðu sveitarfélagsins. Þá hefur mikil uppbygging átt sér stað í skólamálum og málefnum aldraðra. Ötullega hefur einnig verið unnið í gerð göngustíga til að efla almenna útivist íbúa og byggðir hafa verið góðir reiðvegir í dreifbýli enda er mikil hrossarækt og hestamennska í Ölfusinu.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með ráðningu
Ragnheiður Dagsdóttir - ragnheidur.dagsdottir@capacent.is
Þorbjörg Guðjónsdóttir - thorbjorg.gudjonsdottir@capacent.is
Umsóknafrestur til og með:
11. júlí 2010

