Tilkynningar

2.7.2010

Júlí fréttablað

 

Unglingar úr vinnuskólanum

Í sumar eru 11 unglingar að vinna í leikskólanum fram að sumarfríi. Átta eru hálfan daginn og þrír eru allan daginn.   Þau eru Þóra Björg og Þórir á Álfaheimum, Anna María, Guðjón Axel, Stefanía Ásta og Jón Jökull á Hulduheimum, Halldór Rafn, Magnús Þór og Silwia á Tröllaheimum og á Dvergaheimum eru Sunna Ýr og Ómar Örn. Þau taka virkan þátt í daglegum störfum bæði úti og inni. Það er gaman að hafa  unglinga í vinnu og börnin eru mjög hrifin af þeim.

Grill og hjóladagur

Grill og hjóladagur tókst mjög vel, lögreglan hafði því miður ekki tök á að koma í heimsókn þennan hjóladaginn. Í hádeginu var svo boðið upp á grillaðar pylsur.  Það rættist úr veðrinu  og varð mjög hlýtt eftir hádegi.

Sumarfrí

Sumarfrí í leikskólanum er frá miðvikudeginum 7. júlí til 11. ágúst. Þann 11. ágúst verður starfsdagur og börnin mæti ekki þann dag en á þessum starfsdegi skipuleggja kennarar vetrarstarfið. Þann 12. ágúst mæta börnin í leikskólann.

Starfsmannahald

Eftir sumarfrí verða miklar tilfærslur á starfsfólki milli deilda og verður það kynnt betur þegar við komum aftur til starfa eftir sumarfrí.

Póstkassi

Póstkassi er  á öllum deildum þar sem börnin geta komið með bréf/kort/myndir að heiman og sagt frá því hvað þau voru að gera. T.d  ef þau eru að fara í útilegur eða gera eitthvað skemmtilegt heima hjá sér um helgar sem þau vilja deila með hinum krökkunum. Þetta auðveldar yngstu börnunum að ræða um það sem þau hafa verið að gera.

Merkingar á fatnaði og skóm

Enn og aftur þarf að minna foreldra á að merkja alla skó og útifatnað barnanna, s.s húfur, buff, vettlinga, regngalla.  Mikið er um að börnin séu í eins skóm og regngöllum og er nauðsynlegt að hafa þetta allt merkt.

Vikan 1.-2 júlí

2. júlí er síðasti dagur hjá yngstu unglingunum  sem eru í vinnu í Bergheimum.

2. júlí er sameiginleg söngstund hjá öllum deildunum.

Vikan 5.-6. júlí

6. júlí er síðasti dagurinn fyrir sumarfrí.

                                                                                                                       

Kveðja

Dagný aðstoðarleikskólastjóri

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica