Tilkynningar

12.7.2010

Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tveimur starfsmönnum til starfa við frístundaheimilið.  Um er að ræða  forstöðu frístundaheimilis 79% stöðu og 54% stöðu frístundaleiðbeinanda.

 

Starfið felst m.a. í;

*       Umsjón með börnum í 1-4 bekk eftir skóla.

*       Stuðningur við nemendur.

*       Miklu samstarfi við starfsmenn grunnskóla, leikskóla og nemendur.

 

Menntunarkröfur;

*    Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og / eða   reynslu af uppeldisstörfum.     

*    Færni í mannlegum samskiptum.

*    Frumkvæði í starfi.

*    Jákvæðni og áhugasemi

*    Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS.

Bæði kynin eru hvött til að sækja um.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, tímabundin ráðning.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í síma 483-3807.

Umsóknareyðublöð fást  á www.olfus.is eða á skrifstofu sveitafélagsins í Ráðhúsinu Hafnarbergi 1  og skal skilað þangað eigi síðar 30. júlí 2010.

 

 

 

 

 

 



Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica