Menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Lista- og menningarsjóði Sveitarfélagsins.
Markmið sjóðsins er:
-að efla hverskonar menningarstarfsemi, list og listiðnað í Sveitarfélaginu.
-að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði menningarmála er tengjast Sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á bæjarskrifstofu, Bæjarbókasafni Ölfuss eða hér á vef sveitarfélagsins (sjá tengil hér fyrir neðan). Í umsókn skulu markmið verkefna og áætlanir um framkvæmd þeirra vera skýrar. Sýnt skal fram á að styrkurinn sé líklegur til að efla menningarstarfsemi í Sveitarfélaginu.
Upplýsingar um reglur Lista- og menningarsjóðs Sveitarfélagsins Ölfuss er hægt að finna hér á vefnum (sjá tengil hér fyrir neðan). Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2010. Umsóknir berist á Bæjarbókasafn Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, merkt „Lista- og menningarsjóður Ölfuss“ eða með netpósti á netfangið barbara@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Barbara Guðnadóttir, menningarfulltrúi í síma 480 3830 eða 863 6390.
Reglur um Lista- og menningarjóð Ölfuss
Menningarnefnd Ölfuss

