Tilkynningar
Ferðamálafélag Ölfuss 2006
Mynd 1 af 3
1 2 3

1.2.2011

Dagana 18. – 21. mars standa Markaðsstofa Suðurlands, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Menningarsamningur Suðurlands fyrir landshlutasýningu í Ráðhúsinu í Reykjavík undir yfirskriftinni ,,Suðurland já takk“.  Markmið sýningarinnar er fyrst og fremst að kynna framleiðslu og þjónustu á Suðurlandi. Sýningin á að höfða til fagaðila og neytenda sem kaupa og nýta sér framleiðslu- og þjónustu af svæðinu.

Fyrirtæki, stofnanir og hópar hvött til að taka þátt í sýningunni og eiga þannig þátt í að gera landshlutann sem sýnilegastan.

Þátttökukostnaður er 18.000 pr. fyrirtæki og verður sýningarsvæðið skipulagt með þátttökuaðilum.

Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku vinsamlega hafið samband  við Davíð Samúelsson, davidsam@south.is  4835555  og Steingerði Hreinsdóttur, steingerdur@sudur.is  4804212

Einnig geta áhugasamir í Ölfusi haft samband við Barböru Guðnadóttur, menningarfulltrúa Ölfuss, sem er tengiliður á svæðinu. Síminn hjá henni er 8636390 en netfangið barbara@olfus.is


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: