Heimaþjónusta

19.5.2009

Heimaþjónusta

Starfsmenn í heimaþjónustu annast almenn heimilisstörf svo og innkaup og annað sem mætir persónulegum þörfum einstaklingsins. eins og félagslegan stuðning. hvatning til samveru inni og úti er mikilvægur þáttur í starfsemi. eins er reynt að meta hvað einstaklingurinn þarf hverju sinni á aðstoð að halda.


Dagvist aldraða

Rekin er dagvist aldraðra til húsa á Egilsbraut 9. Dagvist er stuðningsúrræði fyrir þá sem búa í heimahúsum og þurfa aðhlynningu yfir daginn.

Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun þeirra og stuðla að þeir geti búið lengur heima.

Reynt er eftir megni að hafa ofan fyrir einstaklingum eftir getu hvers og eins.

Dagvist er opin frá kl. 08:00 – 16:00 virka daga.

Eldhús er rekið á dagvist, morgunmatur, hádegismatur og síðdegiskaffi.  Eins er hægt að fá heimsendan mat frá dagvist.


Upplýsingar um félagslega þjónustu er hjá forstöðumanni:
Sigrúnu Theódórsdóttur sími 483-3614 eða á sigrunth@olfus.is

 

 


Eldri borgarar spila vist

Tungumál



Útlit síðu: