Endurvinnsla

8.4.2010

Sveitarfélagið Ölfus hefur aukið þjónustu við íbúa með því að bjóða upp á svokallaða blátunnu. Blátunna er sorptunna svipuð þeirri sem nú þegar er við hvert heimili undir almennt sorp, nema að því leiti að hún er með bláu loki til aðgreininigar. Blátunna er ætluð undir pappírsúrgang eins og dagblöð, hvítan prentpappír, sléttan pappa t.d. fernur og morgunkornskassa.

 

Tilgangur verkefnisins er að koma endurvinnanlegum blaða og pappírsúrgangi í réttan farveg og þar af leiðandi minnka sorp sem fer til urðunar. Blátunnuverkefnið dregur úr kostnaði sveitarfélagsins vegna sorpurðunar sé til framtíðar litið. Með því að endurnýta pappírinn sparast hráefni, kemísk efni og orka sem annars þarf í meira mæli þegar pappír er unnin úr trjám. Nýlegir útreikningar sem verkfræðistofan Línuhönnun gerði fyrir Sorpstöð Suðurlands sýnir að flokkun og endurvinnsla á dagblöðum og pappír sem fellur til á Suðurlandi leiðir til sparnaðar útblástur á sem nemur 130 persónueiningum (pe) af gróðurhúsalofttegundum. Þetta magn jafngildir yfir 1.1 milljón kílóum af koltvísýringi (CO2) árlega. Bláatunnan er jafnframt aukning á heildarsorprými við heimilið sem minnkar þar með þörfina á að vera með tvær tunnur. Bláatunnan er aukin þjónusta við íbúa þar sem ekki þarf að safna blöðum og öðrum pappír innandyra milli ferða út í grenndargámana. Blátunnan tekur við fleiri pappírsflokkum en grenndargámakerfið gerir sem hefur verið starfrækt í sveitarfélaginu síðan 1996.

 

Það er val hvers heimilis að nýta þessa þjónustu, en ekki verður innheimt sérstakt gjald vegna blátunnunnar, þar sem urðunarkostnaður verður minni með tilkomu verkefnisins.  Byrjað verður á að úthluta 300 tunnum en strax á næsta ári verða fleiri tunnur í boði. Blátunnan verður losuð á sex vikna fresti.

 blatunna

 

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni http://www.blatunna.is/.

 

 

 


Herjólfur á leið til Vestmannaeyja

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica