Reglur vinnuskólans

Reglur vinnuskóla Ölfuss                                        

 

Markmið:

Markmið Vinnuskóla Ölfuss er að bjóða upp á:

  • hollt og uppbyggjandi sumarstarf fyrir 13, 14, 15 og 16 ára unglinga.
  • fjölbreytt störf á mismunandi vinnusvæðum.
  • fræðslu um notkun og meðferð algengra verkfæra.
  • fræðslu um náttúru og umhverfi
  • reynslu og þekkingu sem að gagni kemur á sviði verklegra framkvæmda.

Unglingar eru kallaðir í starfsmannaviðtal við sinn flokkstjóra áður en Vinnuskólinn hefst á vorin þar sem farið er yfir reglur og skyldur.

 

Starfstími:

Starfstími Vinnuskólans er 10 vikur, frá byrjun júní fram að miðjum ágúst.

Unglingar úr   7. bekk: 20 tímar á viku í 4 vikur, þ.e. 20 vinnudagar.

Unglingar úr   8. bekk: 30 tímar á viku í 8 vikur, þ.e. 40 vinnudagar.

Unglingar úr   9. bekk: 30 tímar á viku í 9 vikur, þ.e. 45 vinnudagar.

Unglingar úr 10. bekk: 30 tímar á viku í 9 vikur, þ.e. 45 vinnudagar.

Vinnutími hjá 7. bekk: 8:00-12:00 mánud.-föstud., en 8:00-15:30 mánud.-fimmtud. og 8:00-12:00 föstudag. hjá 8.-10. bekk.

Leyfisdagar eru tilkynntir á umsóknareyðublaði fyrirfram, leyfilegt er að slíta ráðningartímann einu sinni í sundur.

 

Starfsreglur:

  • Vinnuskólinn er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður; á leið í og úr vinnu, á vinnusvæði og í matar- og kaffihléum, þ.e. sá tími sem trygging nær yfir.
  • Mæta ber stundvíslega til vinnu og skila fullum vinnudegi.
  • Beiðni um leyfi afgreiðir flokksstjóri.
  • Foreldrar gera viðkomandi flokkstjóra grein fyrir veikindum unglingsins.
  • Fara skal vel með verkfæri, stunda vinnuna samviskusamlega og fara eftir leiðbeiningum og fyrirmælum yfirmanna.
  • Laun eru greidd fyrir fræðsludaga ef viðkomandi tekur þátt í allri dagskránni af fullri einurð.
  • Unglingar leggja sér sjálfir til allan hlífðarfatnað og skal hann vera samkvæmt aðstæðum og verkefnum. Öllum er ráðlagt að hafa með sér bakpoka og merkja fatnað, skó og stígvél.
  • Notkun farsíma við vinnu er ekki heimil.
  • Engin ábyrgð er tekin á fötum nemenda, reiðhjólum, farsímum eða öðrum hlutum sem þeir hugsanlega taka með sér á vinnustað.

Við skráningu í Vinnuskólann er litið svo á að unglingur sé að sýna áhuga á að taka þátt í starfi skólans. Honum ber að vinna þau verkefni sem honum eru falin án þess að stöðugt þurfi að ganga eftir því að hann haldi sig að verki.  Þá ber honum líka að sýna öllum samstarfsmönnum sínum, flokksstjórum og yfirmönnum Vinnuskólans, svo og öllum bæjarbúum fyllstu kurteisi þegar hann er við vinnu.

 

Flokkstjóri hefur heimild til að senda ungling heim úr vinnu og skal flokkstjórinn þá hringja heim og tilkynna ástæðu brottvikningar. Til þess þarf þó að vera rík ástæða og eru aðrar leiðir reyndar áður en til þessa úrræðis er gripið. Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun að fullu, að undangenginni áminningu eða frádrátt af launum.


Umsögn og viðurkenning:

Allir nemendur Vinnuskólans fá umsögn frá flokkstjóra sínum, um frammistöðu sína að sumarstarfinu loknu.

Umsögnin er í fjórum stigum:

  • mjög gott,
  • gott,
  • sæmilegt og
  • ófullnægjandi.

Eftirtalin atriði eru metin:

  • stundvísi,
  • framkoma,
  • tekur fyrirmælum,
  • vandvirkni,
  • sjálfstæð vinnubrögð,
  • samvinna,
  • meðferð verkfæra og
  • afköst.

Helstu verkefna sumarsins er getið og flokkstjóri gefur almenna umsögn í nokkrum setningum um frammistöðu nemandans.

 

Kaup og kjör:

Laun eða kjör unglinganna eru tengd samningum Verkalýðsfélagsins Boðann 

Unglingar, 13 ára, eru undanþegnir staðgreiðslu skatta.

Unglingar, 14 ára, eru undanþegnir staðgreiðslu skatta.

Unglingar, 15 ára, skila skattkorti.

Unglingar, 16 ára, skila skattkorti og greiða í lífeyrissjóð og félagsgjöld, sem reiknast frá byrjun næsta mánaðar eftir að viðkomandi verður 16 ára.

Laun eru lögð inn á bankareikning sem verður að vera á nafni og kennitölu viðkomandi unglings.

 

Unglingar eru tryggðir launþegatryggingu sem tryggir þá í vinnu og á beinni leið til og frá vinnu.

 

Flokkstjórar:

Yfirflokkstjóri heldur utan um störf flokkstjóra og sér um samræmingu milli flokka, auk þess að leysa af flokkstjóra þegar á þarf að halda. Hann heldur utan um vinnuskýrslur, umsagnir og tengsl við stofnanir sveitarfélagsins sem taka til sín unglinga í starfskynningu. Einnig skipuleggur hann fræðslu og leikjastarf.

Flokkstjóri stjórnar vinnuflokki unglinga með 10 - 15 einstaklingum. Þeir skulu allir vera eldri en 20 ára með reynslu af vinnu með unglingum t.d. frá Félagsmiðstöð, Frístundaheimili eða Vinnuskóla og æskilegt er að hafa fengið fræðslu um eftirfarandi:

  • Stjórnun, agastjórnun.
  • Skyndihjálp, líkamsbeitingu og öryggi á vinnustað.
  • Auk annarrar fræðslu.

Flokkstjóra ber að vera hjá sínum flokki á vinnutíma  ( þ.m.t. kaffitíma ). Honum er ekki heimilt að skilja unglingana eftir eftirlitslaus. Flokksstjórar færa vinnuskýrslur og eiga að brýna fyrir unglingunum vinnusemi, stundvísi og heiðarleika.
Helstu verkefni og verkfæri:

Unglingar úr 7. bekk, 13 ára á árinu:

  • Aðstoð við leikja-, íþrótta- og sundnámskeið.
  • Hreinsun og snyrting á og við opinber og opin svæði og fjörur.
  • Hreinsun og umhirða gróðurs.
  • Ruslahreinsun.
  • Aðstoðarstörf í stofnunum bæjarins, t.d. leikskóla, íþróttamiðstöð, knattspyrnuskóla, leikjanámskeiðum, smíðavelli, bókasafni, gólfvelli og fleira.  Þar sjá starfsmenn stofnunarinnar um að fræða unglinga um stofnunina og starf það sem hann á að inna af hendi.
  • Helstu verkfæri: Handverkfæri, kústar, hrífur, sköfur, skóflur og hjólbörur.

 

Unglingar úr 8. bekk, 14 ára á árinu:

  • Hreinsun og snyrting á og við opinber og opin svæði og fjörur.
  • Hreinsun og umhirða gróðurs í görðum eldri borgara og öryrkja.
  • Hreinsun blóma- og trjábeða og umhirða gróðurs.
  • Ruslahreinsun.
  • Helstu verkfæri: Handverkfæri, kústar, hrífur, sköfur, skóflur og hjólbörur.

 

Unglingar úr 9. bekk, 15 ára á árinu:

  • Hreinsun og snyrting á og við opinber og opin svæði og fjörur.
  • Viðhald á leiktækjum t.d. mála rólur og önnur leiktæki.
  • Hreinsun og umhirða gróðurs í görðum eldri borgara og öryrkja.
  • Gróðursetning blóma, trjáa og áburðargjöf.
  • Helstu verkfæri: Handverkfæri, kústar, hrífur, sköfur, plöntustafir og skóflur, hjólbörur, penslar og önnur málningaráhöld.

 

Unglingar úr 10. bekk, 16 ára á árinu:

  • Hreinsun og snyrting á opnum svæðum í bænum.
  • Sláttur og rakstur og létt viðhald á lóðum stofnana bæjarins.
  • Sláttur og rakstur í görðum eldri borgara og öryrkja.
  • Gróðursetning og áburðargjöf.
  • Viðhald á leiktækjum t.d. mála rólur og önnur leiktæki.
  • Helstu verkfæri: Handverkfæri, penslar og önnur málningaráhöld, kústar, hrífur, sköfur, plöntustafir, skóflur, hjólbörur, sláttuvélar og handsláttuorf.

 

Áhætta:

Öll ofangreind aldursskipting við val verkefna og notkun verkfæra og áhalda er í fullu samræmi við reglugerð um vinnu barna og ungmenna nr. 426, 10. júní 1999.

Slys við vinnu verða tilkynnt til Vinnueftirlits ríkisins á eyðublaðinu “Tilkynning um vinnuslys” samkvæmt reglum Félagsmálaráðuneytisins frá 22. desember 1989.

 

Fræðslustarf:

Á starfstíma sumarsins fær hver árgangur þrjá sérstaka fræðsludaga. Um er að ræða fræðslu um umhverfismál, atvinnumál og safnafræðslu.

Í tengslum við fræðsludagana er farið í sund, golf eða annað þess háttar.

 


Herjólfur á leið til Vestmannaeyja

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica