Viðburðir
| 5 ágú. 2010 | 6 ágú. 2010 »
Gengið um Aðalvík á Ströndum
Ganga Ferðamálafélags Ölfuss um Aðalvík, Straumnes og Hesteyri
Þann 5.-8. ágúst nk. mun Ferðamálafélag Ölfuss standa fyrir göngu um svæði á Hornströndum. Um er að ræða þriggja daga ferð sem hentar fólki á öllum aldri.
Ferðatilhögun, farið er á eigin bílum:
Fimmtudaginn 5. ágúst kl. 09:00 er lagt af stað frá Bakaríinu í Þorlákshöfn og ekið vestur í Ögurvík. Þar bíður okkar bátur kl. 15:00 sem siglir með fólk og farangur í Aðalvík.
Föstudaginn 6. ágúst er gengið út á Straumnesfjall um 7 km. leið göngutími um 3 klst. hvora leið.
Laugardaginn 7. ágúst er gengið yfir á Hesteyri um 10 km. leið göngutími um 5 klst.
Sunnudaginn 8. ágúst kemur báturinn á Hesteyri kl. 10:00 og siglir með okkur í Ögurvík, síðan ekið til Þorlákshafnar.
Mikilvægt er að þeir sem ætla í ferðina skrái sig á netfang Maria.Sigurdardottir@or.is, vigdisbrynjolfs@gmail.com, vigi@flugger.com og olafur@olfus.is, fyrir föstudaginn 30. júlí nk. Kostnaður við ferðina er kr. 15.000,- pr/mann. Fararstjóri Ólafur Áki Ragnarsson
Allir velkomnir
Stjórn Ferðamálafélags Ölfuss
Fararstjóri er Ólafur Áki Ragnarsson

