Viðburðir
| 10 sep. 2010 | 11 sep. 2010 »
Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafsson og eyðibýlin
Fyrstu tónleikar Tóna við hafið þennan vetur verða föstudaginn 10. september, þegar söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson ásamt hljóðfæraleikurunum Sigurði Flosasyni, Kjartani Valdemarssyni og Matthíasi Hemstock flytja lög Sigurðar Flosasonar við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Ljóðin komu fyrst fram í ljósmynda- og ljóðabók skáldsins og ljósmyndarans Nökkva Elíassonar; „Eyðibýli“ árið 2004. Tónlistina er að finna á hljómdiski sem kom út fyrir síðustu jól undir yfirskriftinni „Það sem hverfur“. Lögin hverfast um horfinn heim íslenskra eyðibýla; húsin, hlutina sem urðu eftir, fólkið sem fór og hina framliðnu sem e.t.v. eru enn á stjái. Þarna renna saman jazz, popp, klassík og þjólagatónlist og skapa bræðing sem hæfir efninu vel.
Tónleikarnir eru í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn og hefjast klukkan 20:30.

